Beint í efni
Að lyfta upp breytingum

Að lyfta upp breytingum

Helstu upplýsingar

Leiðtogafærni
Mannauðsmál
Dagsetningar og dagskrá
6. mars 2026
15 klst
98.000 kr.
Staðnám

Um námskeiðið

Er nóg að vera frábær í breytingum til að ná árangri? Hefðbundnar aðferðir duga ekki alltaf - oft þarf nýja nálgun til að ná raunverulegum árangri.

Námskeiðið kennir þér að sjá heildarmyndina - ekki bara að leiða breytingar, heldur líka að gera þær auðveldari fyrir alla, með því að hámarka getu og aðlögunarhæfni vinnustaða.

Vagninn er einföld en öflug aðferð sem kortleggur alla krafta vinnustaðarins - bæði þá sem styðja og hefta og þá sem valda alvarlegum þunga. Um er að ræða einfalt en kraftmikið sjónrænt líkan sem gefur leiðtogum nýjan fókus og gerir vinnustaði heilbrigðari. Hugmyndafræði Vagnsins byggir á blöndu af kenningum úr breytingastjórnun og gagnreyndum aðferðum kennara.

Ágúst Kristján Steinarrsson hefur 20 ára reynslu af breytingum og hugmyndafræði Vagnsins fæddist árið 2011. Síðan þá hefur hann tekist á við krefjandi breytingar í ólíkum skipulagsheildum og Vagninn hefur þróast með. Í dag er Vagninn orðinn heildstæð aðferðarfræði sem hann hefur kennt víða.

Hugmyndafræðin byggir á fjórum lykilkröftum:

  • Kraftar með breytingum (→): Þættir sem ýta undir breytingar
  • Kraftar á móti breytingum (←): Þættir sem vinna gegn breytingum
  • Þungi (↓): Djúpstæðir þættir sem hafa lamandi áhrif á starfsfólk og breytingar
  • Helíum (↑): Þættir í umhverfinu sem stuðlar að því að starfsfólk verði besta útgáfan af sjálfu sér og virkir þátttakendur í breytingum.

Á námskeiðinu munt þú: 

- Kynnast einföldu en áhrifaríku sjónrænu líkani sem gefur nýjan fókus og styður allar breytingar.

- Öðlast verðmætan skilning á mannlegri hlið breytinga og færni til að hafa jákvæð áhrif á hegðun og viðhorf í         breytingaferlinu

- Öðlast hagnýt verkfæri til að kortleggja stöðu vinnustaðar og vinna skipulega að breytingum með hugmyndir og aðferðir sem virka.

Kenndar verða árangursríkar aðferðir í breytingastjórnun frá fræðimönnum eins og Kurt Lewin, John Kotter og Dan Heath. Auk þess byggir námskeiðið á fjölbreyttum fræðilegum grunni ADKAR, Switch, Progress Principle og fleiri viðurkenndum aðferðum sem stuðla að skilningi og árangri.

Samhliða fræðilegri yfirferð munu blandast inn raunsögur úr reynsluheim kennara, af vinnustöðum sem hafa tekist á við flóknar breytingar, krefjandi þunga og náð að byggja upp Helíumkrafta. Ágúst deilir jafnframt sínu lærdómsferðalagi - hvernig hann þróaðist frá bjartsýnum umbótarsinna yfir í raunsæjan leiðtoga breytinga.

Fyrir hverja er námskeiðið

Námskeiðið er fyrir stjórnendur, leiðtoga og alla sem vilja ná djúpstæðum árangri í breytingum eða umbreytingum - hvort sem snýr að vinnustöðum eða samfélögum.

Skipulagið

Kennsla verður blanda af fræðslu, umræðum, hópavinnu og léttri heimavinnu. Allt gert til þess að hámarka lærdóm og getu nemenda til að nýta sér lærdóminn til framtíðar. Námskeiðið er 15 klst. og er kennt eftirfarandi daga:

- 6. mars 09:00 - 12:00

- 13. mars 09:00 - 12:00

- 20. mars 09:00 - 12:00

- 27. mars 09:00 - 15:00

Hagnýtar upplýsingar

Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.

Verkefnastjóri

Íris Bjarnadóttir

irisbja@ru.is

Leiðbeinendur

Ágúst  Kristján  Steinarrsson
Ágúst Kristján Steinarrsson
Stjórnunarráðgjafi í breytingum