Beint í efni
Fjármál og rekstur fyrirtækja

Fjármál og rekstur fyrirtækja

Helstu upplýsingar

Fjármálafærni
Leiðtoga- og stjórnendalínur
Dagsetningar og dagskrá
1. okt. 2025
24 klst. (4x6 klst.)
305.000 kr.

Um námskeiðið

Góð þekking á fjármálum frá hinum ýmsum hliðum skiptir höfuðmáli í reksti fyrirtækja. Námið skilar færni í gerð fjárhagsáætlana og að fylgja áætlunum og ákvörðunum eftir á virkan hátt. Þessi kunnátta er t.a.m. nauðsynleg við stofnun nýrra fyrirtækja. 

Um fjármál og rekstur

Nemendur öðlast í náminu góða fjármálaþekkingu er snýr m.a. að því að gera áætlanir, lesa ársreikninga, meta bestu fjármögnunarleiðina, nýta sviðsmyndagreiningu og taka skynsamlegar ákvarðanir. Þekkinging getur nýst þeim í öllum greinum atvinnulífsins. Námið er ætlaði öllum þeim sem vilja dýpka þekkingu sína og og auka færni á sviði reksturs og fjármála. 

Að námskeiði loknu er stefnt að því að þátttakendur muni:

  • Kunna að byggja upp rekstrar- og efnahagsreikninga og sjóðstreymisyfirlit
  • Kunna aðferðir við ákvarðanatöku
  • Kunna að nota næmni og sviðsmyndagreiningar og þekki mikilvægi frávikagreiningar
  • Skilja tvískiptingu efnahagsreiknings; fjármuna og fjármögnun
  • Vita kostnað við fjármögnun
  • Þekki hagkvæmni í samsetningu skulda og eiginfjárs

Nemendur þurfa ekki að þreyta próf og þeim er ekki sett fyrir heimavinna.

Kennsla

Kennarar námslínunnar hafa sérfræðiþekkingu á mörgum sviðum  fjármálastjórnunar eins og stefnumótun, greiningu, fjárfestingastjórnun, ákvarðanatöku, verðbréfamiðlun, hagfræði og markaðsviðskiptum. Þeir nota hagnýt og fjölbreytt verkefni sem tengjast íslensku atvinnulífi í kennslunni.

Fyrir hverja er námskeiðið

Námið hentar öllum sem hafa áhuga á að bæta við sig þekkingu í fjármálum og rekstri, sem hafa ekki fjármálabakgrunn en þurfa að koma að áætlanagerð og öðrum verkefnum á þessu sviði. T.d.

  • sérfræðingar
  • einyrkjar
  • nýsköpunarfyrirtæki

Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi grunn í fjármálum.

Skipulagið

Námslínan er alls 24 klukkustundir.

Kennt er í staðarnámi í fjórum námslotum og í tímum er unnið í verkefnum bæði einstaklings og í hópum. 

Vinsamlega athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar og að lágmarksþátttaka náist.

Hagnýtar upplýsingar

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið

Innifalið í verði námskeiðs er morgunkaffi og hádegismatur þá daga sem kennt er.

Þátttakendur fá aðgang að kennslukerfi HR þar sem námsefnið finnst.

Verkefnastjóri

Linda Vilhjálmsdóttir

lindav@ru.is 

599 6341

Leiðbeinendur

Andri  Heiðar Kristinsson
Andri Heiðar Kristinsson
Meðeigandi hjá Frumtaki Ventures
Unnar Friðrik Pálsson
Unnar Friðrik Pálsson
Viðskiptafræðingur og löggiltur endurskoðandi
Sigurður Erlingsson
Sigurður Erlingsson
Fjármála ráðgjafi