31. mars 2026
Aðalsteinn Leifsson með hádegisfyrirlestur
Miðvikudaginn 8. apríl verður Aðalsteinn Leifsson með ókeypis hádegisfyrirlestur í beinu streymi.
Hvenær? 8. apríl 2026 kl. 11:00
Aðalsteinn Leifsson verður með opinn hádegisfyrirlestur í beinu streymi miðvikudaginn 8. apríl. Þar mun hann fara yfir 5 hluti sem þú getur gert í dag til að verða frábær samningamaður.
Fyrirlesari: Aðalsteinn Leifsson er sérfræðingur í samningatækni, lektor við Háskólann í Reykjavík, kennari við MBA-nám HR, fyrrum ríkissáttasemjari, aðstoðarmaður utanríkisráðherra og framkvæmdastjóri hjá EFTA. Þá er hann höfundur bókar um samningatækni og hefur víðtæka reynslu af þátttöku í samningaviðræðum.
Nauðynslegt er að skrá sig á viðburðinn hér til að fá hlekk á streymið eða hér að neðan.
Dagsetning
Deila
31. mars 2026