Fyrirtækjalausnir
Við hönnum fræðslu í takt við ykkar þarfir
Við vinnum náið með fyrirtækjum að því að greina þarfir og skapa lausnir sem skila raunverulegum árangri. Fræðslan spannar allt frá leiðtogahæfni og mannauði til gervigreindar, stafrænnar færni, rekstrar og stjórnarhátta. Markmiðið er að efla hæfni starfsfólks og styrkja samkeppnishæfni fyrirtækisins.
Leiðtogahæfni og mannauður
Sérsniðin fræðsla fyrir stjórnendur, teymi og mannauðssvið
Opni háskólinn vinnur með fyrirtækjum og stofnunum að þróun leiðtogahæfni og mannauðsmála sem styðja við árangur, vellíðan og sjálfbæra starfsemi. Fræðslan er byggð á rannsóknum, reynslu og raunverulegum áskorunum í íslensku og alþjóðlegu samhengi.
Við leggjum áherslu á að tengja fræðslu beint við daglegt starf, hlutverk stjórnenda og menningu skipulagsheilda.
Dæmi um efni
- Leiðtogafærni og stjórnunarstílar
- Coaching-nálgun í stjórnun og mannauðsmálum
- Samskipti, teymisvinna og ágreiningslausnir
- Vellíðan, seigla og breytingastjórnun
- Menning, gildi og ábyrg forysta
Hentar fyrir:
Stjórnendur, millistjórnendur, HR- og mannauðssvið.
Athugið: Fyrirtæki og stofnanir geta í mörgum tilfellum sótt um styrki fyrir fræðslu starfsfólks. Nánari upplýsingar má finna á Áttin - Vegvísir að færni.
Gervigreind, tækni og stafræn færni
Hagnýt fræðsla sem tengir tækni við starfsemi
Við bjóðum markvissa fræðslu um gervigreind, stafræna færni og tæknilæsi með áherslu á notkun í starfi, stefnumótun og ákvarðanatöku. Nálgunin er hagnýt og aðgengileg – án tæknijargons – og miðar að því að styðja skipulagsheildir í stafrænum umbreytingum.
Fræðslan er ætluð bæði stjórnendum og starfsfólki og mótast af þörfum hvers viðskiptavinar.
Dæmi um efni
- Gervigreind í starfi stjórnenda og starfsfólks
- Microsoft Copilot, Power BI og Power Automate
- Tæknilæsi og gagnahugsun
- Stafræn umbreyting í fyrirtækjum og stofnunum
- Siðferði, öryggi og ábyrg notkun gervigreindar
Hentar fyrir:
Fyrirtæki í umbreytingu, opinberar stofnanir, stjórnendur og sérfræðinga.
Athugið: Mögulegt er að sækja um styrki til fræðslu starfsfólks. Sjá nánar á Áttin - Vegvísir að færni .
Fagleg færni og rekstur
Fræðsla sem styður daglegt starf og ákvarðanatöku
Opni háskólinn býður sérsniðna fræðslu sem styrkir faglega færni, eykur rekstrarhæfni og styður markvissa ákvarðanatöku. Námskeiðin byggja á raunhæfum dæmum og miða að því að þátttakendur geti nýtt þekkinguna strax í starfi.
Fræðslan er sniðin að hlutverkum, ábyrgð og starfsaðstæðum hvers hóps.
Dæmi um efni
- Verkefnastjórnun og skipulag
- Fjármálalæsi og rekstrarhugsun
- Greiningarhugsun og ákvarðanataka
- Viðskipta- og skýrslugerð
- Gæðastjórnun, ferlar og umbætur
Hentar fyrir:
Sérfræðinga, rekstrarteymi og millistjórnendur.
Athugið: Fyrirtæki geta í mörgum tilvikum fengið fræðslu styrkta fyrir starfsfólk sitt. Nánari upplýsingar eru á Áttin - Vegvísir að færni .
Stjórnarherbergið
Fræðsla og samtal fyrir stjórnir og æðstu stjórnendur
Stjórnarherbergið er vettvangur fyrir sérsniðna fræðslu og faglegt samtal sem styrkir stjórnarhætti, stefnumótun og ábyrgð. Áhersla er lögð á hlutverk stjórna, samspil við framkvæmdastjórn og ákvarðanir í flóknu og síbreytilegu umhverfi.
Fræðslan fer fram í trúnaði og er mótuð í nánu samstarfi við hverja stjórn.
Dæmi um efni
- Hlutverk og ábyrgð stjórna
- Stefnumótun og langtímahugsun
- Áhætta, eftirlit og stjórnarhættir
- Gervigreind og áhrif á ákvarðanatöku stjórna
- Siðferði, sjálfbærni og samfélagsábyrgð
- Krísustjórnun og ákvarðanir undir óvissu
Hentar fyrir:
Stjórnir fyrirtækja og stofnana, stjórnarformenn og æðstu stjórnendur.
Athugið: Í ákveðnum tilvikum er mögulegt að sækja um styrki vegna fræðslu. Sjá nánar á Áttin - Vegvísir að færni .
Hafðu samband - Fræðsla í takt við ykkar þarfir
Viltu vita meira?
Vinsamlega hafið samband við Ingunni S. Unnsteinsdóttir Kristensen, forstöðukonu Opna háskólans í HR eða Kristin Hjálmarsson, þróunarstjóra Opna háskólans í HR fyrir frekari upplýsingar um sérsniðna fræðslu.













































