Ókeypis vefnámskeið um netógnir – skráðu þig núna!
Opni háskólinn býður til spennandi og fróðlegs ókeypis vefnámskeiðs um netógnir mánudaginn 19. maí kl. 13:00. Námskeiðið er hluti af nýrri mánaðarlegri fræðslulínu þar sem fjallað er um þróun netógna, háþróaðar árásaraðferðir og hvernig hægt er að efla netöryggi fyrirtækja og stofnana.
Fyrirlesari námskeiðsins er dr. Jacky Mallett, lektor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík og sérfræðingur í netöryggi. Hún mun fara yfir raunveruleg dæmi um nýleg netárásartilvik og draga fram hagnýtar leiðir til að styrkja viðnámsþol skipulagsheilda gegn vaxandi ógnum.
Fyrsta viðfangsefni námskeiðsins verður:
- Lausnargengi (e. ransomware gangs)
- Gervigreindarnýttar árásir
- Vaxandi samhæfing tölvuglæpa á alþjóðavísu
Þetta námskeið hentar sérstaklega vel fyrir starfsfólk í upplýsingatækni, stjórnendur, stefnumótendur, og alla þá sem hafa áhuga á netöryggi og stafrænum áskorunum samtímans.
Skráning er hafin hér að neðan og þátttaka er ókeypis.
Dagsetning
Deila