Beint í efni
21. janúar 2025

Vel heppnuð ráðstefna um gervigreind

Í síðustu viku fór fram metnaðarfull ráðstefna á vegum Opna háskólans í HR undir yfirskriftinni AI & Society: Bridging Innovation & Responsibility. Þar komu saman fjölmargir sérfræðingar og hagsmunaaðilar úr atvinnulífinu, háskólasamfélaginu og stjórnsýslu til að ræða hraðar tækniframfarir á sviði gervigreindar og samfélagslegra áhrifa þeirra.

Ráðstefnan heppnaðist afar vel og skapaði vettvang fyrir áhugaverðar umræður um nýsköpun, siðferðileg álitaefni og ábyrga notkun gervigreindar. Þátttakendur fengu innsýn í fjölbreytt erindi, nýjustu rannsóknir og hagnýtar lausnir á sviði gervigreindar, auk þess sem ráðstefnan bauð upp á dýrmæt tækifæri til tengslamyndunar.

Við viljum þakka öllum sem tóku þátt fyrir frábærar umræður, skýra sýn og innblástur til frekari samvinnu.

21. janúar 2025