Beint í efni
23. mars 2026

Dr. Andressa Sleiman með hádegisfyrirlestur

Föstudaginn 27. mars verður Dr. Andressa Sleiman með hádegisfyrirlestur í beinu streymi. Fyrirlesturinn er opinn öllum og aðgangur ókeypis.

Dr. Andressa Sleiman er atferlisfræðingur, ráðgjafi á sviði atferlismiðaðrar stjórnunar (OBM) og kennari við Florida Tech. Hún vinnur með fyrirtækjum og stofnunum að því að bæta leiðtogahætti, árangur og vinnuumhverfi. Hún er með doktorsgráðu í sálfræði og sérhæfir sig í að beita atferlisvísindum við raunveruleg verkefni á sviðum stjórnunar.

Í þessum hádegisfyrirlestri mun Andressa skoða hvernig leiðtogar geta hannað aðstæður sem auka líkur á góðum árangri í daglegu starfi. Hádegisfyrirlesturinn hefst kl. 11 og er hægt að skrá sig á fyrirlesturinn hér eða á forminu hér að neðan.

23. mars 2026