Beint í efni
13. mars 2026

Gestur AI & Society ráðstefnunnar fundar með forseta Íslands og íslenskum sérfræðingum

Nelli Blinova, sem starfar við alþjóðleg samstarf um gervigreind í ráðuneyti stafrænnar umbreytingar í Úkraínu, er stödd á Íslandi í tilefni af AI & Society ráðstefnu Opna háskólans í Háskólanum í Reykjavík. Í heimsókninni hefur hún átt fundi með lykilaðilum í íslensku samfélagi til að ræða notkun gervigreindar í opinberri stjórnsýslu og uppbyggingu stafrænnar innviða.

Frá vinstri: Anna Liebel, Nelli Blinova, Halla Tómasdóttir og Halyna Matsera.

Á miðvikudag heimsótti Nelli Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, á Bessastöðum. Þar ræddu þær meðal annars hvernig Úkraína nýtir gervigreind til að styrkja lýðræðislegar stofnanir og bæta þjónustu við borgara. Úkraína hefur á undanförnum árum verið í fararbroddi í stafrænum lausnum í opinberri þjónustu og nýtt gervigreind sem hluta af þeirri þróun.

Í heimsókn sinni til Íslands hefur Nelli einnig átt fundi með fjölda íslenskra sérfræðinga og stjórnenda. Hún átti meðal annars fund með Birnu Jónsdóttur, framkvæmdastýru Stafræns Íslands, þar sem rætt var um stafræna umbreytingu og miðlun þekkingar milli landa.

Þá hitti hún fulltrúa Fjarskiptastofu, þar sem meðal annars var rætt um þrautseigju (resilience) fjarskiptainnviða og mikilvægi öruggra stafrænnra kerfa á tímum aukinna áskorana í netöryggi og innviðavernd.

Heimsókninni lauk með fundi í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, þar sem sérfræðingar ræddu uppbyggingu gervigreindarinnviða og framtíðarsamstarf á sviði gervigreindar og stafrænnar nýsköpunar.

Nelli Blinova flytur erindi á AI & Society ráðstefnunni, þar sem hún fjallar um hvernig Úkraína nýtir gervigreind í opinberri þjónustu og stefnumótun ríkisins. Þar mun hún einnig fjalla um hvernig gervigreind er notuð til að styrkja samfélagslegar innviði og lýðræðislega stjórnsýslu.

Nelli Blinova á ráðstefnunni.
13. mars 2026