Beint í efni
20. apríl 2026

GJ Travel og Opni háskólinn hefja samstarf um sérsniðnar fræðsluupplifanir á Íslandi

GJ Travel og Opni háskólinn við Háskólinn í Reykjavík hafa hafið samstarf með það að markmiði að þróa og bjóða upp á sérsniðnar fræðsluferðir fyrir alþjóðlega hópa. Þar á meðal fyrirtæki, stofnanir og háskóla.

Með samstarfinu er sameinuð fræðileg þekking og reynsla af framkvæmd á vettvangi. Opni háskólinn hannar sérsniðin fræðsluefni með áherslu á sjálfbærni, orkumál, leiðtogahæfni, nýsköpun og tækni, ásamt víðari nálgun sem tengist nærandi ferðaþjónustu. GJ Travel sér um alla ferðatengda þætti, þar á meðal gistingu, samgöngur og vandlega valdar upplifanir víðs vegar um Ísland.

Samstarfið snýr jafnframt að því að styrkja hugmyndafræði GJ Travel, Workshop on Wheels, sem byggir á ramma CE4RT (e. Circular Economy for Regenerative Tourism) um nærandi ferðaþjónustu þar sem fræðsla, ferðalag og virk þátttaka fléttast saman í heildstæða upplifun með raunverulegri tengingu við umhverfi og samfélag.

„Við sjáum mikil tækifæri í því að tengja saman nám og upplifun. Með þessu samstarfi getum við boðið alþjóðlegum hópum einstaka blöndu af fræðslu og innsýn í íslenskt samfélag og lausnir,“ segir Ingunn S. Unnsteinsdóttir Kristensen, forstöðukona hjá Opna háskólanum.

„Með því að bæta fræðslu inn í ferðirnar sköpum við sterkari og innihaldsríkari upplifun fyrir gesti okkar, þar sem ferðalagið leiðir til dýpri tengingar og virkrar þátttöku, meðal annars í verkefnum tengdum lýðvísindum,“ segir Stefán Gunnarsson, forstjóri GJ Travel.

Fræðsluferðirnar eru hannaðar fyrir hvern einstakan hóp og geta meðal annars falið í sér vinnustofur, vettvangsheimsóknir, staðbundna fræðslu og aðra námsþætti. Í Workshop on Wheels eru þessir þættir hluti af ferðalaginu sjálfu, þar sem sérfræðileiðsögn, heimsóknir á raunveruleg viðfangsefni og verkefni, þar sem þátttakendur leggja sitt af mörkum, tengja fólk beint við íslenska náttúru, samfélag og sjálfbæra þróun.

Samstarfið byggir á sameiginlegri sýn um sjálfbærni og ábyrga þróun. Með því að tengja saman fræðslu og raunverulega upplifun leitast GJ Travel og Opni háskólinn við að styðja við dýpri skilning á ábyrg verkefni og skapa jákvæð og varanleg áhrif fyrir bæði þátttakendur og áfangastaði.

Ingunn Unnsteinsdóttir, forstöðukona Opna háskólans, og Stefán Gunnarsson, forstjóri GJ Travel.
20. apríl 2026