Hvað þýðir það í raun að vera leiðtogi?
Óformlegi leiðtoginn - opinn viðburður
Hvar? Stofa M 217 í Opna háskólanum
Hvenær? 3. desember kl. 9-11:30
Hvað þýðir það í raun að vera leiðtogi – ekki bara á pappírnum heldur í verki?
Taktu þátt í lifandi samtali þar sem við deilum reynslu, speglum okkur í hvoru öðru og finnum nýjar leiðir til að vaxa sem leiðtogar.
Viðburður í samstarfi faghóps um leiðtogafærni hjá Stjórnvísi og Opna háskólans í HR, leiddur af Láru Kristínu Skúladóttur.
Í atvinnuauglýsingum er alltaf verið að ráða inn leiðtoga! En hvað þýðir það í raun að vera leiðtogi – ekki bara á pappírnum heldur í verki?
Að vera ráðinn inn sem leiðtogi er stór titill að fylla upp í.
Hvernig get ég verið leiðtogi í raun?
Hvaða leiðir get ég farið til að efla mig?
Hvaða veggi rekst ég sífellt á – og hvaða áskoranir eru raunverulegar fyrir mig?
Og hvað er allt þetta geggjaða fólk þarna úti sem virðist vera „alveg með þetta“ að gera?
Komdu og fáðu speglun, nýjar hugmyndir og innsýn – tengjast öðrum leiðtogum og deildu þínum eigin lærdómi! Við notum Open Space aðferðina til að skapa lifandi flæði þar sem við gefum og þiggjum, tengjumst og vöxum saman.
Þú færð tækifæri til að:
- Ræða raunverulegar áskoranir í leiðtogahlutverkinu
- Tengjast kollegum á nýjan og dýpri hátt
- Fá ferskar hugmyndir, innblástur og hvatningu
- Stækka sjóndeildarhringinn í góðum félagsskap
Viðburðurinn er 2,5 klst og hentar öllum sem vilja vaxa í leiðtogahlutverki sínu – hvort sem þú ert nýr í því eða með reynslu í farteskinu.
Komdu, speglaðu þig, lærðu og taktu næsta skref í þinni leiðtogafærni!
Dagsetning
Deila