Beint í efni
18. nóvember 2025

Hvernig tengist sjálfbærni menningu, öryggi og árangri fyrirtækja?

Fólk og sjálfbærni - örnámskeið
Stafræn fræðsla í boði Opna háskólans við HR
Hvenær? 26. nóvember kl. 11:00

Miðvikudaginn 26. nóvember verður Ketill Berg Magnússon með örnámskeiðið Fólk og sjálfbærni. Viðburðurinn verður í beinu streymi.

Mannlegi þátturinn í rekstri, það sem við köllum félagslega sjálfbærni, er grunnur að rekstraröryggi, seiglu og langtíma virðissköpun. Hún styrkir menningu, dregur úr áhættu, eykur framleiðni og hjálpar fyrirtækjum að standast áföll sem annars gætu valdið miklu tjóni.

Félagsleg sjálfbærni er heildstæð nálgun til að vinna með fólk í fyrirtækjum; öryggi, virðiskeðjur og samfélög. Þegar mannauður, heilsu- og öryggisteymið, lögfræðideild, sjálfbærniteymi og samskipti vinna að sameiginlegum markmiðum verður til sterkari menning, betri áhættustýring og skýrara virði fyrir fyrirtækið.

Á þessu stutta örnámskeiði mun Ketill fjalla um mannlega þátt sjálfbærni og m.a. ræða:

• Hvers vegna sjálfbærni snýst um meira en sorpflokkun og kolefnisspor
• Hvernig mannauður og öryggismál tengjast rekstraröryggi
• Hagnýt ráð til að sýna ávinning og byrja strax

Fyrirlesari: Ketill Berg Magnússon, sérfræðingur í sjálfbærni og verkefnastjóri í alþjóðlegu heilbrigðis- og öryggisteymi JBT Marel.

Nauðsynlegt er að skrá sig til að fá hlekk á streymið hér.

18. nóvember 2025