Kynningarfundur á Magnavita náminu 2026
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 klukkan 16:00 mun Opni háskólinn í samstarfi við Magnavita halda kynningarfund þar sem námslínan Magnavita verður kynnt.
Magnavita námið stendur yfir tvær annir og er ætlað fólki á aldrinum 55 til 75 ára. Í náminu setja nemendur sér stefnu og markmið fyrir þriðja æviskeiðið til þess að skipuleggja innihaldsríkt líf og fjölga góðum, spennandi og heilbrigðum æviárum.
Fundurinn verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík og er opinn öllum. Kynntu þér þetta spennandi nám en nánar má
fræðast um námið hér:
https://www.oh.ru.is/namskeid/magnavita-namid/356922
Námið hefst svo 16. september.
Við hvetjum öll sem áhuga hafa á að mæta á fundinn. Ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband við Írisi Bjarnadóttur, verkefnastjóra, á irisbja@ru.is.
Dagsetning
Deila