Beint í efni
28. mars 2025

Liður í því að hafa raunveruleg áhrif á lýðheilsu

Opni háskólinn og deildir íþróttafræði og sálfræði Háskólans í Reykjavík stóðu að ráðstefnunni Vöðvaverndardagurinn síðastliðinn fimmtudag. Að þessu sinni var yfirskriftin; Vöðvaverndardagurinn: Fræðsla og vitundarvakning til að verjast vöðvatapi og markmiðið með ráðstefnunni að varpa ljósi á vöðvavernd á efri árum.

Viðburðurinn er fyrsta skrefið í tímamótanálgun tveggja vísindasviða í heilbrigðismálum á Íslandi. Erlendir og íslenskir fræðimenn á sviðum heilbrigðis- og íþróttavísinda fluttu þar erindi til að opna á samtal milli fagstétta í heilbrigðiskerfinu og íþróttafræðinnar.

Ingunn S. Unnsteinsdóttir Kristensen, forstöðukona Opna háskólans, segir skýra fræðslu og aðgengilegar upplýsingar hafa megin áhrif á bætta lýðheilsu.

Við vitum hvað gagnast best en nú þurfum við að koma því til skila. Það dugar ekki að nýjustu rannsóknir og þekking haldist innan veggja fræðasamfélagsins. Við verðum að miðla henni til almennings og ekki síður til alls þess öfluga heilbrigðisstarfsfólks sem stendur vaktina og styður við heilsu fólksins í landinu. Dagurinn er því liður í að veita skýra fræðslu og aðgengilegar upplýsingar til að efla markvisst vitundarvakningu um málefnið. Með því móti má hafa raunveruleg áhrif á lýðheilsu og samhliða draga úr vöðvarýrnun á öllum aldri.

Fundarstjóri var Rohan Fransis, yfirlæknir í hjartalækningum við Colchester-sjúkrahúsið.
Fundarstjóri var Rohan Fransis, yfirlæknir í hjartalækningum við Colchester-sjúkrahúsið.
  • Fundarstjóri var Rohan Fransis, yfirlæknir í hjartalækningum við Colchester-sjúkrahúsið.
  • Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, setti ráðstefnuna en með fundarstjórn fór Rohan Fransis, yfirlæknir í hjartalækningum við Colchester-sjúkrahúsið og heiðursráðgjafi við Essex Cardiothoracic Centre.

Eftirfarandi erindi voru á dagskrá;

  • Keynote - Improving health care professional and public awareness that exercise is medicine - Dawn Skelton
  • Health professionals and bias-Dan Jolley
  • Expanding the Reach: How One Personal Trainer's Mission to Prevent Sarcopenia Goes Beyond the Clinic-Robert Linkul
  • Strength in Movement: Moving towards Exercise Physiology for Chronic Disease Management in Iceland -Michael Inskip
  • Hvernig fáum við eldra fólk til að taka þátt í þjálfun á sjúkrahúsi og halda áfram eftir útskrift? - Arnar Hafsteinsson
  • Er lýðheilsa leiðinleg – eða bara illa markaðsett? -Jóhann Friðrik Friðriksson
  • Vísindamiðlun á mannamáli – hvernig föngum við athygli fjölmiðla og almennings-Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðukona samskiptasviðs HR
  • Um mikilvægi samvinnu og hvatningar-Hanna Steinunn Steingrímsdóttir
28. mars 2025