Mýtur í breytingum | Örnámskeið
Fimmtudaginn 22. janúar verður Ágúst Kristján Steinarrsson með örnámskeið í beinu streymi. Námskeiðið er ókeypis og hefst kl. 11.
Mýtur í breytingum
Algengt er að fyrirtæki reyna að stjórna breytingum – en það leiðir sjaldan til árangurs. Breytingar gerast með fólki, ekki fyrir það. Á þessu örnámskeiði snýr Ágúst algengum hugmyndum um breytingar við og sýnir hvað skiptir raunverulega máli: Að fólkið kemur á undan verkefninu og grunnurinn á undan áætluninni.
Þátttakendur fá praktíska hugvekju sem breytir hugmyndum leiðtoga um breytingar og kynnt eru tól sem hægt er að beita strax í starfi. Lögð er áhersla á að horfa ætíð á heildarmyndina áður en lagt er af stað, með lyftikraftinn að leiðarljósi.
Ágúst Kristján Steinarrsson er stjórnunarráðgjafi í breytingum hjá Viti ráðgjöf og kennir á námskeiðinu Að lyfta upp breytingum hjá Opna háskólanum. Nálgun hans byggir á Vagninum – aðferðafræði sem er sprottin úr djúpstæðri reynslu af breytingum hjá fyrirtækjum og stofnunum síðustu 20 árin. Ágúst vinnur með fólki að skapandi, praktískum og skipulögðum breytingum þar sem mannlega hliðin er alltaf í fyrirrúmi.
Eins og áður segir er námskeiðið ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið hér til að fá hlekk á streymið.

Dagsetning
Deila