Netógnir með Jacky Mallett
Fjölmennt á fyrirlestri um netógnir
Í síðustu viku stóð Opni háskólinn fyrir fyrsta viðburðinum í nýrri röð mánaðarlegra netfyrirlestra undir yfirskriftinni Current Cyber Threats. Fjölmargir þátttakendur tóku þátt og hlýddu á fróðlegt erindi dr. Jacky Mallett, lektors við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Á námskeiðinu fór dr. Mallett yfir nýjustu þróun í netógnum, helstu aðferðum sem notaðar eru í árásum og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta byggt upp betri viðnámsþol. Í fyrirlestrinum var meðal annars fjallað um starfsemi lausnargengja (e. ransomware gangs), áhrif gervigreindar á netárásir og sívaxandi viðveru glæpasamtaka á netinu.
Námskeiðið er hluti af mánaðarlegri fyrirlestralínu þar sem boðið verður upp á ókeypis mánaðarleg erindi þar sem tekin eru fyrir ný og brýn málefni í netöryggi. Næsti viðburður fer fram mánudaginn 23. júní kl. 13:00 og verður opinn öllum áhugasömum.
Hægt er að skrá sig á næsta fyrirlestur hér að neðan. Nauðsynlegt er að skrá sig á fyrirlesturinn til að geta fengið hlekkinn á fyrirlesturinn.
Hægt er að nálgast upptöku úr fyrsta fyrirlestri Jacky hér að neðan:

Dagsetning
Deila