Beint í efni
13. ágúst 2025

Nýjustu netógnir #3 | Mannleg mistök og traust

Nýjustu netógnir | Mánaðarlegt fræðsluerindi um netöryggi

Opni háskólinn í samstarfi við Dr. Jacky Mallett, sérfræðing í netöryggi og lektor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, halda mánaðarlega veffyrirlestra þar sem farið er yfir nýjustu þróun í netógnunum, aðferðafræði árása og varnaraðgerðir.

Næsta erindi: 20. ágúst kl. 13:00

Næsta umræðuefni: Mannleg mistök og traust í samfélaginu

Í þessum fyrirlestri mun Dr. Jacky Mallett, dósent í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík, fjalla um það hvernig árásaraðilar nýta mannleg mistök og traust í samfélaginu til að hafa áhrif á ákvarðanatöku. Jacky mun skoða raunveruleg dæmi af slíkum árásum, greina aðferðir ógnaraðila og bjóða upp á hagnýt ráð.

13. ágúst 2025