Beint í efni
3. september 2025

Nýttu Microsoft Copilot til að vinna hraðar, betur og snjallar

Fimmtudaginn 25. september mun Opni háskólinn bjóða upp á ókeypis örnámskeið í beinu streymi um Microsoft Copilot.

Microsoft Copilot hefur opnað nýja möguleika til að einfalda dagleg störf og auka framleiðni í Microsoft 365.

Á þessum stutta en hnitmiðaða viðburði færðu:

  • Raunveruleg dæmi um hvernig Copilot getur hjálpað í Word, Excel, Outlook og Teams
  • Hagnýt ráð til að nýta gervigreind til að spara tíma
  • Leiðbeiningar um fyrstu skrefin fyrir þitt vinnuumhverfi

Viðburðurinn er kjörinn fyrir fagfólk í skrifstofustörfum, stjórnendur og alla sem vilja læra að nýta Copilot til að vinna skilvirkar og snjallar.

Fyrirlesari: Rúna Loftsdóttir, sérfræðingur með áratuga reynslu í fræðslu innan upplýsingatækninnar. Hún sérhæfir sig í Microsoft 365 umhverfinu og ITIL (Information Technology Infrastructure Library) ferlum.

Viðburðurinn er ókeypis og fer fram í beinu streymi.

3. september 2025