Opni háskólinn sækir alþjóðlega ráðstefnu um símenntun í Lille
Ingunn S. Unnsteinsdóttir, forstöðukona Opna háskólans, og Kristinn Hjálmarsson, viðskipta- og þróunarstjóri í Opna háskólanum, sóttu nýverið árlega ráðstefnu European University Continuing Education Network (eucen) sem haldin var í Lille, Frakklandi. Ráðstefnan bar yfirskriftina Enhancing University Lifelong Learning Culture in Europe og var sú 55. í röðinni, en eucen er stærsta evrópska netið tileinkað símenntun og endurmenntun innan háskóla.
Á ráðstefnunni komu saman fræðafólk og stjórnendur háskóla víðs vegar að úr Evrópu, Bandaríkjunum og Singapúr til að ræða hvernig megi þróa og efla menningu símenntunar í háskólasamfélaginu. Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi þess að háskólar verði virkir þátttakendur í að skapa aðgengilegar, sveigjanlegar og markvissar leiðir fyrir fólk á öllum aldri til að afla sér þekkingar í gegnum lífið.

Pascal Paschoud, forseti eucen og framkvæmdastjóri símenntunar við UNIL-EPFL í Sviss, flutti opnunarávarp sem vakti mikla athygli. Þar lagði hann áherslu á mikilvægi þess að styðja við nám alla ævi – sérstaklega í ljósi þess flókna og óstöðuga samfélagslega og pólitíska umhverfis sem við lifum við í dag. Hann minnti á mikilvægi gagnrýnnar hugsunar, upplýstrar ákvarðanatöku og þess að miðlun upplýsinga komi frá fagfólki með þekkingu og ábyrgð.
Meðal helstu umræðuefna á ráðstefnunni voru örnámskeið og einingakerfi (microcredentials), sveigjanleiki í námi, fjárhagslegt umhverfi og hvernig háskólar geta stuðlað að þróun og innleiðingu símenntunar í sinni víðustu mynd. Fjallað var um hvernig háskólasamfélagið geti tekið virkan þátt í verkefnum sem spanna allt frá gagnasöfnun og rannsóknum til hagnýtra námsleiða – bæði með og án eininga.
Einnig var fjallað um mikilvægi þess að nám sé aðgengilegt öllum og þar á meðal rætt um nám fyrir fólk á þriðja æviskeiði, sem hluta af framtíðarsýn háskóla um að þekking og menntun eigi ekki að takmarkast við ákveðinn aldur eða starfsferil.
Þátttaka Opna háskólans í ráðstefnunni rennir stoðum undir stefnu hans um að bjóða fjölbreytt og hagnýtt nám sem styður við starfsþróun einstaklinga og þarfir atvinnulífsins.
„Það er mikilvægt að sækja slíkar ráðstefnur til að fylgjast með þróun á sviði símenntunar í Evrópu og eiga í samtali við samstarfsaðila. Við lærum af öðrum og getum jafnframt miðlað okkar reynslu,“ segir Ingunn.
Fyrir ráðstefnuna hittu fulltrúar Opna háskólans Dr. Julien de Miribel, aðstoðardeildarforseta fyrir alþjóðasamskipti við sálfræði-, uppeldis- og þjálfunardeild háskólans í Lille. Þau voru einnig boðin í hádegisverð með samstarfsaðilum NeurotechEU, þar sem tækifæri gafst til að efla tengslanet innan háskólasamfélagsins í Evrópu.
Háskólinn í Reykjavík er þátttakandi í NeurotechEU, öflugu samstarfsneti háskóla í Evrópu með það markmið að efla menntun, rannsóknir og nýsköpun á sviði taugavísinda og tækni. Í gegnum þetta samstarfsnet tekur Háskólinn í Reykjavík þátt í þróun þverfaglegra námsleiða og alþjóðlegs aðgengis að námi, í takt við framtíðarsýn háskólasamfélags Evrópu.
Um eucen
Eucen er evrópsk samtök sem sameina yfir 170 háskóla og stofnanir í meira en 35 löndum. Hlutverk samtakanna er að efla gæði og aðgengi að símenntun innan háskólakerfisins og hvetja til nýsköpunar og samvinnu á því sviði.
Markmið Opna háskólans eru í takt við áherslur ráðstefnunnar – að stuðla að símenntun sem auðveldar einstaklingum að halda áfram að læra í gegnum ævina.

Dagsetning
Deila