Beint í efni
31. mars 2026

Sinead ný forstöðukona Skema

Sinéad hefur verið ráðin forstöðukona Skema, skapandi tæknináms fyrir börn og ungmenni. Hún er hönnuður, STEAM-kennari og verkefnastjóri með víðtæka reynslu á mörkum menntunar, hönnunar og tækni. Sinead hóf störf í janúar.

Frá árinu 2017 hefur Sinéad kennt og þróað þverfaglegt STEAM-nám við Landakotsskóla og leitt verkefni sem sameina hönnunarhugsun, forritun, stafræna framleiðslu og vélmennafræði. Nemendur undir hennar handleiðslu hafa náð framúrskarandi árangri og meðal annars unnið til verðlauna í landskeppnum í nýsköpun og vélmennafræði. Fyrir störf sín hlaut hún viðurkenninguna Nýsköpunarkennari ársins árið 2023.

Sinéad er með meistaragráðu í hönnun frá Listaháskóla Íslands auk diplómu í listkennslu og BA (Hons) gráðu í grafískri, vöru- og gagnvirkri hönnun. Hún býr yfir yfir tveggja áratuga starfsreynslu í grafískri hönnun og UX-hönnun og hefur meðal annars þróað fræðsluöpp fyrir grunnskólanemendur í samstarfi við Háskóla Íslands.

Hún hefur einnig komið að fjölmörgum alþjóðlegum samstarfsverkefnum á sviði menntunar og nýsköpunar, þar á meðal norræna verkefninu Shared Future: Nordic Tech Pedagogy, og tekið þátt í verkefnum sem tengjast framtíð menntunar og starfa barna á Íslandi. Þá hefur hún kennt við Listaháskóla Íslands og haldið fyrirlestra og vinnustofur hérlendis og erlendis um STEAM-menntun og hönnunarhugsun.

Með ráðningu Sinéadar er horft til áframhaldandi uppbyggingar á öflugu námi í forritun og tækni fyrir ungmenni, en jafnframt aukinnar áherslu á STEAM-nálgun og skapandi greinar. Meðal nýjunga eru námskeið í þrívíddarhönnun, hreyfimyndagerð og Ungir STEAM könnuðir, sem miða að því að efla skapandi hugsun, tæknilæsi og lausnamiðaða nálgun nemenda.

SKEMA
31. mars 2026