Beint í efni

Demo viðburður 2

Nemendur í tölvunarfræðideild kynna lokaverkefni sín
12. júní, 15:06 - 19. júní, 15:06
Demo staður 2
Skrá í dagatal

Nemendur við Háskólann í Reykjavík hafa unnið hörðum höndum að hönnun og smíði kappaksturbíls í anda Formúlu 1. Áhugasömum býðst að skoða bílinn og kynna sér ferlið á bakvið smíðina næstkomandi fimmtudag (15. maí), klukkan 11:30 í Sólinni í HR. Viðburðurinn er í boði RUracing sem stendur á bakvið verkefnið, en hópurinn samanstendur af nemendum í verkfræði og tæknifræði við HR. Verkefnið sameinar nýsköpun, verkfræði og teymisvinnu þar sem nemendur vinna að tæknilegri hönnun, framleiðslu, kostnaðargreiningu og viðskiptaáætlun.

Í byrjun ágúst tekur RU Racing þátt í Formula Student Czech Republic 2025, sem er hluti af stærstu alþjóðlegu verkfræði- og viðskiptakeppni heims fyrir háskólanemendur. Þar keppa lið í bæði verklegum og huglægum greinum, meðal annars akstursprófum, hönnunardómi, fjárfestakynningu og kostnaðarskýrslu.

Liðið fékk þátttökurétt í keppninni í gegnum svokallað Wildcard, sem veitt er minni liðum til að hvetja fjölbreytni og þátttöku nýrra teyma. Um 70 lið taka þátt í keppninni í Tékklandi í ár og er þetta stórt skref fyrir íslenskt háskólalið í alþjóðlegu samhengi.

Um fyrirlesara
Jón
Siggi