Beint í efni

BHM

Sérkjör fyrir félagsfólk BHM hjá Opna háskólanum í HR

BHM býður félagsfólki með virka aðild að Starfsþróunarsetri BHM sérkjör hjá Opna háskólanum í HR, þar sem hver einstaklingur getur sótt eitt af völdum námskeiðum sér að kostnaðarlausu.

Opni háskólinn í HR býður upp á fjölbreytt og hagnýtt nám fyrir einstaklinga og atvinnulíf með áherslu á þekkingu og færni sem nýtist í starfi. Námskeiðin eru kennd af reynslumiklum sérfræðingum og lögð er áhersla á að tengja fræðin við raunveruleg verkefni og áskoranir í atvinnulífinu.

Sérkjör BHM gilda á eftirfarandi námskeið: 

  • Millistjórnandinn – hlutverk og ábyrgð
  • Excel meginatriði: Formúlur og trix
  • Fundarstjórn
  • Leiðtogafærni - (Námskeiði lokið)
  • Kynntu þér Copilot – nýtt vinnulag með gervigreind
  • Spretthugsun og teymisvinna við lausn stærri áskorana - (Námskeiði lokið)
  • Fjármál og rekstur fyrir sjálfstætt starfandi
  • OHR Bókarar – Skattskil rekstraraðila
  • Að taka starfsmannasamtal
  • Að fara í starfsmannasamtal
    Hvernig skrái ég mig?

    Skráðu þig inn á Mínar síður BHM til að nálgast afsláttarkóðann. Kóðinn er aðeins sýnilegur félagsfólki með aðgang að Starfsþróunarsetri BHM. Veldu síðan eitt námskeið hér fyrir neðan og sláðu afsláttarkóðann inn við skráningu hjá Opna háskólanum í HR.

    Öðrum en félagsfólki með virka aðild að Starfsþróunarsetri BHM er með öllu óheimilt að nota afsláttarkóðann. Ef afsláttarkóðinn er notaður af einstaklingi sem ekki hefur aðild að Starfsþróunarsetrinu verður námskeiðsgjald innheimt með greiðsluseðli á viðkomandi einstakling.

    Opni háskólinn í HR áskilur sér rétt til þess að fella niður eða fresta námskeiðum ef óviðráðanlegar aðstæður koma upp.