Beint í efni
6. nóvember 2025

Hvað gerist eftir uppsögn?

Vinnustofa í boði Hagvangs og Opna háskólans við HR

Hvenær? 10. nóvember frá kl. 13:00 - 17:00

Opin vinnustofa og fræðslufundur fyrir fólk sem hefur misst vinnuna og er á milli starfa. Upplegg vinnustofunnar snýr af því sem gerist eftir uppsögn, hvernig á að setja upp ferilskrá og kynningarbréf sem skara fram úr, tækifæri á vinnumarkaði, sjálfsstyrking, markmiðasetning og fleira.

Viðburðurinn er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig enda takmörkuð pláss. Skráning fer fram hér.

Dagskrá

13:00 – 13:15 | Móttaka og kynning

• Opnunarorð frá skipuleggjendum

• Stutt kynning á Hagvangi og tilgangi vinnustofunnar

13:15 – 14:00 | Ferilskrá sem vekur athygli

• Ráðgjafar Hagvangs gefa hagnýt ráð um hvernig megi byggja upp vandaða ferilskrá

• Dæmi um góðar og síðri ferilskrár

14:00 – 14:45 | Kynningarbréf sem skara fram úr

• Hvernig skrifa á kynningarbréf sem grípur athygli ráðningaraðila

• Aðlögun að mismunandi störfum og fyrirtækjum

• Hagnýt æfing: Þátttakendur skrifa sitt eigið bréf

14:45 – 15:00 | Kaffihlé

15:00 – 15:45 | Tækifæri á vinnumarkaði

• Hvernig nýta má tímann á milli starfa til að efla sig

• Sjálfsstyrking og markmiðasetning

• Hvar finn ég tækifærin? LinkedIn og helstu miðlar til að vakta

• Ráðgjafar Hagvangs deila innsýn í þróun vinnumarkaðarins

15:45 – 16:30 | Spurningar og svör

• Þátttakendur fá tækifæri til að spyrja og deila eigin reynslu

• Ráðgjafar Hagvangs deila reynslu og gefa ráð

16:30 – 17:00 | Tengslamyndun og lokaorð

• Tími fyrir tengslamyndun og spjall

• Hvatning til næstu skrefa

6. nóvember 2025