Opni háskólinn og Atlas Primer hefja samstarf um gagnvirka og gervigreindardrifna þjálfun
Opni háskólinn við Háskólann í Reykjavík og Atlas Primer ehf. hafa undirritað samstarfssamning um innleiðingu og þróun nýrra lausna í fræðslu og mannauðsþróun fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Í síbreytilegu viðskiptaumhverfi nútímans er stöðug þróun og þjálfun starfsfólks lykilatriði til að viðhalda samkeppnishæfni. Með samstarfinu mun Opni háskólinn nýta gagnvirkar og gervigreindardrifnar lausnir Atlas Primer til að styrkja enn frekar framboð sitt af sérsniðnum fræðslulausnum fyrir atvinnulífið.
Opni háskólinn hefur á undanförnum árum lagt ríka áherslu á sveigjanleika í framboði og nánu samstarfi við fyrirtæki og stofnanir, þar sem lausnir eru þróaðar í takt við raunverulegar þarfir. Í því felst einnig að vinna náið með sérfræðingum úr atvinnulífinu og fræðasamfélagi Háskólans í Reykjavík, til að tryggja að efni og nálgun sé bæði hagnýt og byggð á traustri þekkingu.
Á sama tíma hefur Opni háskólinn lagt aukna áherslu á að styðja við fyrirtæki í hröðum breytingum tengdum gervigreind, stafrænum umbreytingum og persónuvernd, meðal annars með viðburðum og ráðstefnum þar sem farið er yfir nýjustu þróun og áskoranir á þessum sviðum.
Kjarni samstarfsins felst í notkun tveggja lykillausna Atlas Primer:
- Roleplay, Sem er gagnvirk samtalsþjálfun þar sem notendur æfa raunhæfar sviðsmyndir og fá tafarlausa endurgjöf
- Learning Experience Platform (LXP): Sem er sveigjanlegur fræðsluvettvangur sem gerir fyrirtækjum kleift að safna, þróa og miðla þekkingu á markvissan og gagnvirkan hátt

Með þessum lausnum geta fyrirtæki og stofnanir byggt upp markvissari þjálfun, aukið þátttöku starfsfólks og fylgst betur með árangri í færniþróun, meðal annars með stöðumati og endurgjöf eftir fræðslu.
„Við sjáum mikil tækifæri í að samþætta gagnvirka og gervigreindardrifna þjálfun inn í okkar framboð af sérsniðnum fræðslulausnum. Þetta gerir okkur kleift að styðja enn betur við fyrirtæki í að byggja upp hæfni og styrkja mannauð sinn með mælanlegum árangri,“ segir Ingunn S. Unnsteinsdóttir Kristensen hjá Opna háskólanum.
„Það sem er að breytast núna er að þjálfun getur loksins farið úr því að vera fyrst og fremst fræðsla yfir í að verða raunveruleg æfing á þeim samtölum sem skipta máli. Samstarfið við Opna háskólann er mikilvægt skref í að færa fleiri fyrirtækjum þessa getu í daglegu starfi,“ segir Hinrik Jósafat Atlason, stofnandi Atlas Primer.
Samstarfið styður sérstaklega við þróun og afhendingu sérsniðinna fræðslulausna Opna háskólans, þar sem hægt verður að samþætta Roleplay æfingar Atlas Primer við núverandi námsframboð og þróa nýjar lausnir í takt við þarfir atvinnulífsins.
Dagsetning
Deila