Beint í efni
25. mars 2026

STEAM spjall fyrir kennara

Opinn viðburður Opna háskólans við HR um STEAM kennslu

Mánudaginn 13. apríl mun Skema standa fyrir viðburði fyrir kennara. Þar mun Anastasiya Savran leiða opna umræðu fyrir kennara um STEAM-menntun. Anastasiya er nú að ljúka doktorsritgerð sinni við Kennaraháskólann í Vín, þar sem hún rannsakar STEAM-menntun með sérstaka áherslu á hlutverk listgreina innan þess ramma.

Í erindinu mun hún fjalla um hvernig rannsóknir á list- og fagurfræðimenntun geta virkað sem leiðir til skynjunar, hugsunar og þekkingarsköpunar í STEAM-námi. Í brennidepli eru svokallað STE[A+]M-líkan og [A+]-nálgunin, sem miða að því að móta nýja sýn á STEAM-menntun.

Að erindi loknu verður stutt, verklegt STEAM-verkefni, og síðan opnar umræður um hvernig hægt sé að innleiða STEAM-nálganir í íslenska námskrá.

Viðburðurinn er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig hér:
https://2eon1s.share-eu1.hsforms.com/2b8QwwaUdTg6Jd53Qx3LjlA

Hvenær? 13. apríl 2026 kl. 15:00 - 16:30

Hvar: Stofa M-215

Fyrirlesari: Anastasiya Savran er kennari, listamaður, rithöfundur og rannsakandi við Kennaraháskólann í Vín. Hún er á lokastigi doktorsnáms síns þar sem hún rannsakar STEAM kennslu í grunnskólum og kennaramenntun. Í rannsóknum sínum beinir hún sjónum að því hvernig samþætta má skapandi og listrænar aðferðir við tæknilega hugsun, svo sem forritun og rökhugsun, til að efla áhuga, þátttöku og skilning nemenda. Anastasiya hefur kynnt rannsóknir sínar á alþjóðlegum vettvangi, meðal annars hjá CERN í Genf, og tekið þátt í fjölmörgum evrópskum rannsóknarverkefnum á sviði menntunar, nýsköpunar og STEAM.

25. mars 2026