Beint í efni
Að lesa klefann - Að bregðast við vanlíðan áður en það er of seint

Að lesa klefann - Að bregðast við vanlíðan áður en það er of seint

Helstu upplýsingar

Leiðtogafærni
Mannauðsmál
Stjórnunarfærni
Dagsetningar og dagskrá
2. nóv. 2026
2 klst
22.000 kr.
Staðnám

Um námskeiðið

Vanlíðan á vinnustað má oft greina löngu áður en fólk lætur vita af henni. Merkin eru þó ekki alltaf auðséð og mörgum reynist erfitt að bregðast við á viðeigandi hátt. Í þessari tveggja tíma vinnustofu lærum við að þekkja algeng merki um vanlíðan á vinnustöðum og hvernig við getum brugðist við með nærgætni og af virðingu. Við rýnum í hvernig tilfinningar birtast í vinnunni, hvernig við sem stjórnendur og samstarfsfólk getum tekið eftir breytingum og átt samtal sem styður við bætta líðan áður en vandinn stækkar. Markmiðið er að efla vitund og færni til að byggja upp vinnuumhverfi þar sem eðlilegt er að tala um hvernig okkur líður og styðja við hvert annað.


Markmið námskeiðsins

Eftir vinnustofuna geta þátttakendur:

  • Þekkt algeng einkenni og birtingarmyndir vanlíðanar í vinnu
  • Skilið betur tengsl tilfinninga, hegðunar og starfsgetu
  • Tekið eftir og metið aðstæður þar sem samstarfsfólk gæti þurft stuðning
  • Átt uppbyggileg og nærgætin samtöl við samstarfsfólk eða undirmenn


Helstu efnisatriði

  • Hvað er vanlíðan í vinnu og hverjar eru helstu ástæður fyrir henni?
  • Algengar birtingarmyndir: breytingar á hegðun, samskiptum og frammistöðu
  • Tilfinningar á vinnustöðum: hvernig við bregðumst við og hvað þær segja okkur
  • Að lesa stemminguna: hvernig við getum pikkað upp merki um líðan í daglegu starfi
  • Að taka spjallið: Hvernig er hægt að taka samtalið


Aðferð

Námskeiðið byggir á virkri þátttöku. Við notum raunhæf dæmi, umræður, hópæfingar og stutt fræðileg innskot til að skapa tengingu við raunverulegar aðstæður. Lögð er áhersla á að efla skilning og færni í að taka eftir, bregðast við og tala um líðan í starfi.

Fyrir hverja er námskeiðið

Námið hentar vel fyrir:

  • Stjórnendur á öllum stigum og starfsfólk sem vinnur náið með öðrum. 
  • Allir sem vilja efla færni í að styðja við vellíðan í vinnunni

Skipulagið

Námskeiðið er 2 klst. vinnustofa.

Hagnýtar upplýsingar

Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Athugið að ef greiðsluseðill er valinn er hægt að greiða inn á seðilinn í þínum netbanka. 

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.

Verkefnastjóri

Linda Vilhjálmsdóttir

lindav@ru.is 

599 6341

Leiðbeinendur

Þóra Þorgeirsdóttir
Þóra Þorgeirsdóttir
Lektor í Viðskipta- og hagfræðideild HR