
The Coaching Clinic™ - Leiðtogaþjálfun
Helstu upplýsingar
Um námskeiðið
Árangursrík forysta snýst ekki um að vera með öll svörin á reiðum höndum heldur að kunna að virkja fólk, auka ábyrgð þess og skapa aðstæður þar sem einstaklingar og teymi geta vaxið og náð árangri.
The Coaching Clinic™ er alþjóðlega viðurkennt og hagnýtt leiðtogaþróunarnám fyrir stjórnendur sem vilja nýta markþjálfun sem hluta af sínu daglega stjórnendastarfi. Námið er þróað af Coach U og er nú í boði á Íslandi í samstarfi við Opna háskólann í HR.
Þátttakendur læra að nýta hugarfar og aðferðir markþjálfunar í raunverulegum aðstæðum – spyrja áhrifaríkra spurninga, hlusta af athygli, efla sjálfstæða hugsun og skapa aukið eignarhald og ábyrgð innan teyma.
Áhersla er lögð á æfingar, endurgjöf og hagnýta beitingu fremur en hefðbundna fyrirlestra. Þátttakendur vinna með raunverulegar áskoranir úr eigin stjórnendastarfi og fá verkfæri sem nýtast strax á vinnustað.
Að námskeiði loknu
Hafa þátttakendur bætt færni sína í að:
- leiða markviss og árangursrík samtöl
- auka ábyrgð, frumkvæði og sjálfstæði starfsfólks
- spyrja spurninga sem stuðla að lausnum og nýrri hugsun
- byggja upp traust og sterkari samskipti
- þróa hæfni einstaklinga og teyma
- nýta markþjálfun sem öflugt verkfæri í daglegri stjórnun
Betri samtöl. Meira eignarhald. Sterkari teymi.
The Coaching Clinic™ veitir stjórnendum hagnýta færni til að virkja möguleika fólks og skapa árangur sem varir.
Fyrir hverja er námskeiðið
Námskeiðið hentar stjórnendum, teymisstjórum og verðandi stjórnendum sem vilja efla leiðtogahæfni sína, auk fólks sem vinnur við mannauðsmál og starfsþróun. Það hentar einnig reyndum stjórnendum sem vilja færa sig úr því að vera sá sem leysir vandamálin yfir í að vera leiðtogi sem eflir aðra til að finna lausnir og ná árangri.
Skipulagið
Námskeiðið er kennt sem staðnám og felur í sér mikið af verklegum æfingum.
Tveir heilir dagar:
- Fimmtudagurinn 15. október 2026 kl 8:30 - 18:00
- Föstudagurinn 16. október 2026 kl 8:30 - 18:00
Hagnýtar upplýsingar

Námið er kennt á ensku og er samstarf Opna háskólans og Coach U.
Opni háskólinn í HR
Opni háskólinn í HR er leiðandi á sviði símenntunar og stjórnendafræðslu á Íslandi og leggur áherslu á að efla stjórnendur og fyrirtæki til framtíðar. Fjölmargir öflugir stjórnendur íslensks atvinnulífs sækja nám hjá Opna háskólanum til að bæta leiðtogahæfni sína og auka áhrif sín.
Coach U
Coach U er einn af helstu frumkvöðlum heimsins á sviði markþjálfunarmenntunar og státar sig af meira en 35 ára reynslu af því að mennta og þróa markþjálfa og stjórnendur um allan heim. Coach U sameinar sannreyndar aðferðir, framúrskarandi kennara og nýstárlega tækni til að hjálpa stjórnendum að samþætta markþjálfun við daglegt stjórnendastarf.
The Coaching Clinic™
Sannreynt leiðtogaþróunarnám sem hefur hjálpað stjórnendum víða um heim að efla virkni, samstarf, ábyrgð og árangur með markþjálfunarmiðaðri stjórnun.
Reyndir leiðbeinendur
Leiðbeinendurnir Jennifer Anderson og Melinda Horton búa yfir samanlagt 50 ára reynslu af markþjálfun og leiðtogastarfi. Þær hafa mikla reynslu af því að hjálpa fullorðnum nemendum að yfirfæra þekkingu og innsýn yfir í framkvæmd og að þróa hugarfar, færni og sjálfstraust sem einkennir árangursríka stjórnendur sem beita markþjálfunarnálgun.
Greiðslufyrirkomulag
Hægt er að velja á milli þess að greiða námsgjöldin með korti eða fá greiðsluseðil í heimabanka.
Hægt er að greiða inn á greiðsluseðla, gera raðgreiðslusamning og þannig skipta niður greiðslunum eða greiða með Netgíró eða Pei.
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.
Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Verkefnastjóri
Leiðbeinendur


