
Fjárfestavernd: Flokkun og mat á hæfi og tilhlýðileika
Helstu upplýsingar
Stutt lýsing
Endurmenntun vegna verðbréfaréttinda. Námskeiðið er vottað af Prófnefnd verðbréfaréttinda.
Um námskeiðið
Á námskeiðinu verður farið yfir tilteknar fjárfestaverndarreglur sem fjallað er um í lögum nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga (MiFID-lögin), en þau lög innleiddu svokallað MiFID II/MiFIR-regluverk frá ESB. Farið verður almennt yfir fjárfestavernd, gildissvið reglnanna og eftirlit með fjárfestaverndarreglum á Íslandi. Farið verður síðan yfir tvær mikilvægar fjárfestaverndareglur. Annars vegar um flokkun viðskiptavina í almenna fjárfesta, fagfjárfesta og viðurkennda gagnaðila. Sú flokkun ræður miklu um hve mikla fjárfestavernd hver viðskiptavinur nýtur. Hins vegar verður farið yfir reglur um mat á hæfi og tilhlýðileika þegar fjárfestingarþjónusta er veitt. Reglurnar fela í sér að afla þarf tiltekinna upplýsinga frá viðskiptavini áður en umrædd þjónusta er veitt.
Námskeiðið jafngildir 2 klst. í endurmenntun hjá þeim sem hafa verðbréfaréttindi (áður próf í verðbréfaviðskiptum)
Þeim sem öðlast hafa verðbréfaréttindi er skylt að sækja reglulega endurmenntun sem tryggir að þeir viðhaldi fræðilegri þekkingu, faglegri hæfni og gildum. Endurmenntun vegna verðbréfaréttinda skal að lágmarki svara til sex klukkustunda á hverju þriggja ára tímabili sem skulu vera staðfestar, t.d. með skriflegri staðfestingu námskeiðshaldara eða frá viðkomandi háskóla ef um er að ræða kennslustörf eða fyrirlestrahald á háskólastigi.
Endurmenntunin skal ná til einhverra þeirra greina sem verðbréfaréttindaprófið prófar úr og skal að lágmarki tveimur klukkustundum varið í endurmenntun um lög og reglur á fjármálamarkaði
Endurmenntunartímabil þeirra sem öðlast hafa réttindi hefst 1. janúar árið eftir að þau voru veitt.
Þeir sem hafa verðbréfaréttindi skulu halda skrá um endurmenntun sína og afhenda prófnefnd verðbréfaréttinda hana, á því formi sem nefndin ákveður, óski nefndin eftir því.
Í 8. og 9. gr. reglugerðar um verðbréfaréttindi, nr. 1125/2021, er nánar fjallað um endurmenntun vegna verðbréfaréttindaprófs.
Fyrir hverja er námskeiðið
Fyrir þá sem hafa öðlast verðbréfaréttindi. Þeim er skylt að sækja reglulega endurmenntun sem tryggir að þeir viðhaldi fræðilegri þekkingu, faglegri hæfni og gildum
Skipulagið
Námskeið er stafrænt. Það er alltaf opið og hver þátttakandi vinnur á sínum tíma og hraða.
Hagnýtar upplýsingar
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.
Þeir sem hafa verðbréfaréttindi skulu skrá upplýsingar um endurmenntun sína á Ísland.is, sjá nánar hér.
Verkefnastjóri
Íris Bjarnadóttir I irisbja@ru.is
Leiðbeinendur
