
Forritun fyrir einhverft ungt fólk
Helstu upplýsingar
Um námskeiðið
Námslínan Forritun fyrir einhverft ungt fólk er hugsuð fyrir 18 og eldri. Námsleiðin sameinar tæknilega færni – s.s. grunnforritun og gagnaúrvinnslu – við markvissan félagslegan og persónulegan stuðning.
Nemendur fá fræðilega og verklega þjálfun í litlum hópi þar sem áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám, sveigjanlega nálgun og að nýta styrkleika hvers og eins. Verkefnin eru áhugasviðstengd og hagnýt – t.d. þróun leikja eða greining gagna – og nemendur fá skriflega viðurkenningu fyrir þátttöku.
Námslínan er hluti af verkefni sem nýtur stuðnings frá Einhverfusamtökunum, Vinnumálastofnun og ÖBÍ. Hún er kennd af sérfræðingum í tölvunarfræði og stutt af nemendum og fagfólki úr sálfræðideild HR.
Fyrir hverja er námskeiðið
Námslína er hugsuð fyrir einhverft ungt fólk, 18 og eldri. Þetta er nýtt og sérhannað menntunarúrræði sem miðar að því að veita einstaklingum með einhverfu jöfn tækifæri til náms, starfsþjálfunar og þátttöku í samfélaginu.
Skipulagið
Námslínan spannar tvær annir (haust og vor) og er kennd tvisvar í viku í 2 klst. í senn. Námið fer fram í litlum hópum í rólegu og aðgengilegu umhverfi innan Háskólans í Reykjavík.
Kennt er á miðvikudögum og föstudögum 13:30-15:30. (Birt með fyrirvara um breytingar)
Kennsla fer fram á ensku en stuðningur frá nemendum og fagfólki úr sálfræðideild HR verður á íslensku.
Nemendur eru beðnir um að mæta með tölvu í kennslustundir.
Hagnýtar upplýsingar
Nemendur í meistaranámi í klíniskri sálfræði í Sálfræðideild munu verða mentorar fyrir nemendur.
Mentorakerfinu er ætlað að stuðla að bættri vellíðan og minna brottfalli, og hefur reynst sérstaklega vel meðal þeirra nemenda sem standa höllum fæti í hefðbundnu skólanámi.
Hlutverk mentora verður margþætt:
1. Félagslegur stuðningur:
Mentorinn mun aðstoða nemandur að aðlagast háskólaumhverfinu og mynda tengsl við samnemendur.
2. Fræðilegur stuðningur:
Mentorar veita ráðgjöf um námstækni og skipulagningu, og hvetja til notkunar á aðferðum sem henta viðkomandi best. Þeir geta líka miðlað af eigin reynslu af námi við skólann.
3. Hvatning og sjálfstraust:
Með því að vera fyrirmynd og sýna skilning hvetja mentorar nemendur áfram, sem getur aukið sjálfstraust þeirra. Auk þess munu mentorar hjálpa nemendum að takast á við kvíða eða óöryggi í tengslum við námið.
4. Milligöngumaður:
Mentorar geta gegnt hlutverki brúar milli nemanda og kennara eða annarra aðila innan skólans.
Verkefnastjóri
Íris Bjarnadóttir I irisbja@ru.is
Leiðbeinendur

