
Stutt lýsing
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái góðan skilning á því hvað gagnalæsi er og hvers vegna gagnalæsi og gagnagreiningar eru forsenda góðra ákvarðana. Við undirbúning ákvarðanatöku er gott að geta lesið í aðstæður og það er mikilvægt að geta lesið gögnin sem styrkja ákvörðunina.
Um námskeiðið
Gögn ein og sér eru ekki til mikils. Það er ekki fyrr en við höfum breytt þeim í upplýsingar sem við getum notað þau til að taka betri ákvarðanir. Það er kjarni gagnalæsis, að kunna að raða saman ólíkum breytum til að fá vísbendingar og röksemdir sem styðja, styrkja eða hrekja forsendur fyrir ákvörðunum okkar.
Á námskeiðinu er farið yfir það hvernig hraði þróunar hefur verið og hverju megi eiga von á. Farið er yfir breytingar á ákvarðanatöku og hvernig gagnalæsi og gagnagreiningar eru forsendur fyrir góðri ákvarðatöku og samkeppnisyfirburðum.
Fyrir hverja er námskeiðið
Námskeiðið er fyrir alla sem vilja fara yfir grunnatriðin í gagnalæsi. Fyrir þá sem vilja fara yfir góðar skilgreiningar og fá góðan grunnskilning á gagnalæsi og gagnagreiningu.
Skipulagið
Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim tíma og hraða sem hentar þeim.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans.
Hagnýtar upplýsingar
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Opni háskólinn hvetur þig til að kynna þér möguleikana.
Leiðbeinendur
