
Hlutabréf - áhætta og verðmat
Helstu upplýsingar
Stutt lýsing
Endurmenntun vegna verðbréfaréttinda. Námskeiðið er vottað af Prófnefnd verðbréfaréttinda.
Um námskeiðið
Á þessu námskeiði er farið yfir helstu áhættuþætti sem snúa að hlutabréfum, og einnig farið ítarlega í helstu verðmatsaðferðir, bæði með áherslu á fjárflæði og eins kennitölur, sem notaðar eru til að leggja mat á virði hlutabréfa.
Námskeiðið jafngildir 3 klst. í endurmenntun hjá þeim sem hafa verðbréfaréttindi (áður próf í verðbréfaviðskiptum)
Þeim sem öðlast hafa verðbréfaréttindi er skylt að sækja reglulega endurmenntun sem tryggir að þeir viðhaldi fræðilegri þekkingu, faglegri hæfni og gildum.
Endurmenntun vegna verðbréfaréttinda skal að lágmarki svara til sex klukkustunda á hverju þriggja ára tímabili sem skulu vera staðfestar, t.d. með skriflegri staðfestingu námskeiðshaldara eða frá viðkomandi háskóla ef um er að ræða kennslustörf eða fyrirlestrahald á háskólastigi.
Endurmenntunin skal ná til einhverra þeirra greina sem verðbréfaréttindaprófið prófar úr og skal að lágmarki tveimur klukkustundum varið í endurmenntun um lög og reglur á fjármálamarkaði
Endurmenntunartímabil þeirra sem öðlast hafa réttindi hefst 1. janúar árið eftir að þau voru veitt.
Þeir sem hafa verðbréfaréttindi skulu skrá upplýsingar um endurmenntun sína á Ísland.is, sjá nánar hér.
Í 8. og 9. gr. reglugerðar um verðbréfaréttindi,nr. 1125/2021, er nánar fjallað um endurmenntun vegna verðbréfaréttindaprófs
Fyrir hverja er námskeiðið
Fyrir þá sem hafa öðlast verðbréfaréttindi. Þeim er skylt að sækja reglulega endurmenntun sem tryggir að þeir viðhaldi fræðilegri þekkingu, faglegri hæfni og gildum.
Skipulagið
Námskeið er stafrænt. Það er alltaf opið og hver þátttakandi vinnur á sínum tíma og hraða.
Hagnýtar upplýsingar
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.
Þeir sem hafa verðbréfaréttindi skulu skrá upplýsingar um endurmenntun sína á Ísland.is, sjá nánar hér.
Verkefnastjóri
Íris Bjarnadóttir I irisbja@ru.is
Leiðbeinendur
