Beint í efni
Lögmæt miðlun innherjaupplýsinga og markaðsþreifingar

Lögmæt miðlun innherjaupplýsinga og markaðsþreifingar

Helstu upplýsingar

Endurnýjun réttinda
Verðbréfaréttindi
Sveigjanlegar dagsetningar
2 klst
29.000 kr.
Á eigin hraða

Stutt lýsing

Endurmenntun vegna verðbréfaréttinda. Námskeiðið er vottað af Prófnefnd verðbréfaréttinda. 

Um námskeiðið

Hjá skráðum félögum geta myndast innherjaupplýsingar, t.d. varðandi óvænt uppgjör sem hefur ekki verið birt opinberlega eða samrunaviðræður. Til að draga úr líkum á innherjasvikum er lagt bann við miðlun og dreifingu innherjaupplýsinga nema slíkt sé gert í eðlilegu sambandi við starf, stöðu eða skyldu viðkomandi. Ólögmæt miðlun innherjaupplýsinga getur varðað allt að tveggja ára fangelsisrefsingu. Miklir hagsmunir eru því í húfi að innherjaupplýsingum sé miðlað með lögmætum hætti.

Á námskeiðinu verður farið fyrir þær reglur sem gilda um miðlun innherjaupplýsinga samkvæmt Markaðssvikareglugerð ESB (MAR) sem tók gildi á Íslandi í september 2021. Farið verður einnig yfir þær reglur sem gilda um svokallaðar markaðsþreifingar samkvæmt MAR. Í markaðsþreifingum er verið að kanna áhuga mögulegra fjárfesta á hugsanlegum viðskiptum með skráða fjármálagerninga, ræða verðhugmyndir, umfang viðskipta o.fl. Við slíkar aðstæður er möguleiki að innherjaupplýsingum sé miðlað til þessara fjárfesta. Reglurnar fela í sér verndarsvæði (e. safe harbour) fyrir aðila í markaðsþreifingum. Það þýðir að ef farið er eftir kröfum MAR og afleiddra reglna um markaðsþreifingar eru aðilar öruggir um að miðlun innherjaupplýsinganna sé lögmæt. Reglurnar hafa ekki einungis þýðingu fyrir þá aðila sem stunda markaðsþreifingar heldur einnig þá fjárfesta sem eru „móttakendur“ markaðsþreifinga.

Námskeiðið jafngildir 2 klst. í endurmenntun hjá þeim sem hafa verðbréfaréttindi (áður próf í verðbréfaviðskiptum)

Þeim sem öðlast hafa verðbréfaréttindi er skylt að sækja reglulega endurmenntun sem tryggir að þeir viðhaldi fræðilegri þekkingu, faglegri hæfni og gildum. Endurmenntun vegna verðbréfaréttinda skal að lágmarki svara til sex klukkustunda á hverju þriggja ára tímabili sem skulu vera staðfestar, t.d. með skriflegri staðfestingu námskeiðshaldara eða frá viðkomandi háskóla ef um er að ræða kennslustörf eða fyrirlestrahald á háskólastigi.
Endurmenntunin skal ná til einhverra þeirra greina sem verðbréfaréttindaprófið prófar úr og skal að lágmarki tveimur klukkustundum varið í endurmenntun um lög og reglur á fjármálamarkaði
Endurmenntunartímabil þeirra sem öðlast hafa réttindi hefst 1. janúar árið eftir að þau voru veitt.
Þeir sem hafa verðbréfaréttindi skulu halda skrá um endurmenntun sína og afhenda prófnefnd verðbréfaréttinda hana, á því formi sem nefndin ákveður, óski nefndin eftir því.

Í 8. og 9. gr. reglugerðar um verðbréfaréttindi, nr. 1125/2021, er nánar fjallað um endurmenntun vegna verðbréfaréttindaprófs.

Fyrir hverja er námskeiðið

Fyrir þá sem hafa öðlast verðbréfaréttindi. Þeim er skylt að sækja reglulega endurmenntun sem tryggir að þeir viðhaldi fræðilegri þekkingu, faglegri hæfni og gildum. 

Skipulagið

Námskeið er stafrænt. Það er alltaf opið og hver þátttakandi vinnur á sínum tíma og hraða.

Hagnýtar upplýsingar

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.

Þeir sem hafa verðbréfaréttindi skulu skrá upplýsingar um endurmenntun sína á Ísland.is, sjá nánar hér.

Verkefnastjóri

Íris Bjarnadóttir

irisbja@ru.is

Leiðbeinendur

Andri  Fannar Bergþórsson
Andri Fannar Bergþórsson
Prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík