
Mannauðsstjórnunarhlutverk stjórnenda
Helstu upplýsingar
Um námskeiðið
Allir stjórnendur eru að einhverju leyti mannauðsstjórar. Hér eru hagnýtar hugmyndir til að takast á við ólíkar aðstæður sem flestir stjórnendur takast á við oftar en einu sinni á sínum ferli.
Að námskeiðinu loknu munu þátttakendur geta með öryggi og vissu:
- tekið faglega á móti nýju starfsfólki
- stjórnað fólki í fjarvinnu
- lýst höfuðáherslum í frammistöðustjórnun
- lýst hvaða þættir eru hvetjandi fyrir starfsfólk
- lýst hvernig starfsþróun á sér stað
- lokið ráðningarsambandi með faglegum hætti
- lýst eiginleikum og eðli vinnustaða framtíðarinnar
Yfirferð námskeiðsins tekur tæpa tvo tíma.
Fyrir hverja er námskeiðið
Námskeiðið er mjög hagnýtt og hentar öllum þeim sem vilja efla sig í mannauðsstjórnunarhlutverkinu, hvort sem þeir eru millistjórnendur, verkstjórar, verkefnisstjórar, framkvæmdastjórar og hóp- eða teymisstjórar.
Skipulagið
Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim tíma sem hentar þeim.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans.
Hagnýtar upplýsingar
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Opni háskólinn hvetur þig til að kynna þér möguleikana.
Leiðbeinendur
