Beint í efni
Stjórnendamarkþjálfun – Stig 1 - Executive coaching – Core Essentials  - Level 1

Stjórnendamarkþjálfun – Stig 1 - Executive coaching – Core Essentials - Level 1

Helstu upplýsingar

Leiðtoga- og stjórnendalínur
Leiðtogafærni
Markþjálfun
Stjórnunarfærni
Dagsetningar og dagskrá
23. sept. 2026
Tvær annir - 78 klst - auk kennslu og þjálfunar á netinu.
887.000 kr.

Um námskeiðið

Faglegt markþjálfunarnám Opna háskólans í HR og Coach U 

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við verkefnastjóra og óska eftir samtali, hvort sem er á fjarfundi, síma eða í eigin persónu, til að fá nánari upplýsingar um námið. 

Alþjóðlega viðurkennt markþjálfunarnám í samstarfi Opna háskólans í HR og CoachU er ætlað þeim sem vilja öðlast djúpan skilning og færni í markþjálfun sem umbreytandi faggrein. Samstarfið milli skólanna hefur staðið síðan 2010.

Ný kynslóð hefur breytta sýn á vinnumarkaðinn og starfsfólk gerir auknar kröfur um hvatningu og stuðning frá stjórnendum við að ná markmiðum sínum og mæta þeim áskorunum og vandamálum sem þau standa frammi fyrir. Nám í stjórnendamarkþjálfun skilar stjórnendum nauðsynlegri hæfni í samskiptum og virkri hlustun sem hjálpar þeim við að mæta þessum áskorunum. 

Námið hentar einnig þeim sem sjá um stjórnendaþjálfun svo og þeim sem vilija gera markþjálfun að aðalstarfi. 

Kennarar í náminu hafa flestir hlotið MCC (Master Certified Coach) vottun, sem er efsta vottunarstig ICF. Þeir búa yfir ómetanlegri reynslu af bæði stjórnunarstörfum og þjálfun stjórnenda víðsvegar um heim og hafa alla tíð hlotið fullt hús stiga í kennslumati. 

Kennsluformið er líflegt og fjölbreytt og námið, umgjörðin og leiðbeinendurnir hafa hlotið fullt hús stiga í kennslumati frá upphafi. 
Information in english

Mér finnst þessi þekking sem ég fékk í náminu algjörlega frábær inn í mitt starf sem stjórnandi. Námið er mjög persónulegt en er líka rosalega faglegt og á viðskiptalegum grunni sem nýtist í fyrirtækjunum.“ Guðmundur Ólafsson - Þjálfari og forstöðumaður fyrirtækja, viðskipta og sölu hjá Nova 

„Námið hefur nýst mér einstaklega vel í mínum störfum. Námið hefur gefið mér verkfæri sem ég hef notað til að hjálpa mínu fólki að eflast í sínum störfum og ná hámarks árangri í þeirra verkefnum.“ - Unnur Valborg Hilmarsdóttir - Sveitastjóri í Húnaþingi vestra

Hvað er markþjálfun?

Í hnotskurn er markþjálfun samstarf milli markþjálfans og markþegans í hugvekjandi (thought-provoking) og skapandi ferli sem hvetur markþegann til að hámarka persónulega og faglega möguleika sína.

Um stjórnenda markþjálfun 

Námið er grunnnám í markþjálfun í samstarfi við  Coach U - Level 1 prógram sem er vottað af ICF (International Coaching Federation).

Vottunin þýðir að námið er byggt á og kennir grunn hæfniþætti (Core competiencies) og siðareglur (Code of Ethics) ICF.

Coach U var stofnaður af Thomas Leonard, frumkvöðli markþjálfunar sem gegndi lykilhlutverki í mótun fagsins og stofnun International Coaching Federation (ICF). CoachU var fyrsti skólinn til að hljóta ICF-viðurkenningu og hafa fagleg viðmið innan skólans orðið leiðandi í greininni.

Námið byggir á þeirri heildrænu hugmyndafræði að markþjálfun sé ekki einungis safn aðferða, heldur ákveðin tilvera eða nálgun. Nemendur þróa bæði faglega hæfni og persónulega innsýn í gegnum reynslumiðað og ígrundandi nám sem margir upplifa sem lífsbreytandi. Nálgunin er heildræn og með henni stutt við varanlegar umbreytingar, fremur en einfaldar lausnir. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman að því að efla samskiptahæfni sína í öruggu og hvetjandi námsumhverfi, með áherslu á gagnrýna hugsun, sjálfsskoðun og reynslunám. 

Þetta er krefjandi og ítarlegt nám fyrir þau sem vilja raunverulega ná tökum á markþjálfun. Áhersla er lögð á kjarnahæfni (core competencies) og siðfræði (ethics), sem gerir útskrifuðum kleift að markþjálfa fólk á fjölbreyttum sviðum.

Kennslan er lifandi og gagnvirk, með blöndu af staðarlotum, æfingum í gegnum netið og einstaklingshandleiðslu. Nemendur æfa markþjálfun reglulega, fá faglega endurgjöf og byggja upp sjálfstraust og færni til að starfa sem markþjálfar. 

Í stuttu máli: CoachU er leiðandi í markþjálfun og innan veggja skólans er haldið áfram að mennta markþjálfa á heimsmælikvarða.

Að námi loknu hafa nemendur:

  • Fengið leiðsögn við markþjálfun frá vottuðum MCC leiðbeinendum
  • Veitt og fengið markþjálfun frá samnemendum
  • Tekið þátt í fjarþjálfun (16 klst)
  • Lokið 3 klst einstaklings "Mentor" markþjálfun ásamt frammistöðumati
  • Lokið rafrænum prófum á vegum Coach U
  • Lokið að lágmarki 20 markþjálfunartímum með þremur mismunandi markþegum
  • Lokið Core Essentials Intensive - Level 1 og hlotið viðurkenningu frá Coach U.
  • Fengið frammistöðumat á markþjálfunarsamtali fyrir ACC vottun (Stig 1)
  • NÝTT: Fengið að nýta sérstakt þjálfunartæki sem er hannað fyrir markþjálfa. Tækið byggir á gervigreind og fá nemendur aðgang að 10 klukkustunda þjálfun í gegnum Coach U. 

Útskrifaðir nemendur geta í framhaldinu sótt um ACC-réttindi (Associate Certified Coach) hjá ICF sem veitir þeim alþjóðlega viðurkenningu sem markþjálfar. ACC vottun er fyrsta vottunarstig ICF. ACC vottun er ekki innifalin í náminu.

Fyrir hverja er námskeiðið

Námið hentar þeim sem vilja verða betri stjórnendur, þeim sem vilja þjálfa aðra til að vera stjórnendur eða vilja hafa markþjálfun að aðalstarfi.

Sterk tengsl við vinnumarkaðinn
Sem hluti af Háskólanum í Reykjavík starfar Opni háskólinn í nánu samstarfi við íslensk fyrirtæki og stofnanir. Námið mótast af raunverulegum þörfum markaðarins sem tryggir mikilvægi þess og áhrif. 

Virkt samfélag útskrifaðra og áframhaldandi þróun
Þátttakendur verða hluti af vaxandi og virku samfélagi útskrifaðra. Stutt er við nemendur með viðburðum, tengslamyndun og virku félagi útskrifaðra með stuðningi frá sérstakri stjórn.

Traust og rótgróið nám
Námið hefur notið mikillar ánægju meðal þátttakenda og skilað þeim góðum árangri. Algengt er að útskrifaðir nemendur nýti sér þjálfunina í leiðtogahlutverkum eða til að byggja upp faglega þjálfunarstarfsemi. 

Hvernig stendur námið í samanburði við önnur á Íslandi?

  • Alþjóðlegt samstarf:  Einstakt nám við alþjóðlega þekktan skóla í faginu
  • Fræðilegur trúverðugleiki: Kennt innan leiðandi háskólasamfélags
  • Dýpt og uppbygging: Ítarlegt nám þar sem sameinuð eru fræði, verkleg þjálfun og ígrundun
  • Samfélag til framtíðar: Virk þátttaka í samfélagi útskrifaðra og tækifæri til áframhaldandi náms eftir vottun
  • Viðskiptaleg tenging: Áhersla er lögð á að beita þjálfun í skipulagsheildum og leiðtogahlutverkum

Skipulagið

Nám í stjórnendamarkþjálfun hefst í september ár hvert og lýkur með útskrift í maí árið eftir. 

Námið samanstendur af:

  • Tveimur 4ra daga staðarlotum/vinnustofum í Opna háskólanum í HR. Dagsetningar þeirra eru ákveðnar frá ári til árs.
  • 10 x rafræn próf á vegum CoachU.
  • Tvisvar x 8 klst (samtals 16 klst) fjarþjálfun á vegum CoachU.
  • 3 klst mentor markþjálfun og frammistöðumat á vegum CoachU.
  • NÝTT: Innifalið í náminu er aðgangur að sérstöku þjálfunartæki sem hannað er fyrir markþjálfa. Tækið byggir á gervigreind og fá nemendur aðgang að 10 klst þjálfun í gegnum Coach U.

Athugið að: 

  • skyldmæting er í staðarloturnar
  • Kennslan fer fram á ensku

Aðgangur að efni Coach U 

Nemendur geta nýtt sér sérhönnuð eyðublöð, matskýrslur, greinar, markaðsefni og önnur gögn frá Coach U um leið og þeir hefja námið. 

Með hæstu einkunn 

Kennsluformið er líflegt og fjölbreytt og námið, umgjörðin og leiðbeinendurnir hafa hlotið fullt hús stiga (5/5) í kennslumati frá því að það var fyrst kennt árið 2010. 

Kennsluáætlun 2026-2027

Birt með fyrirvara um breytingar.

Námið hefur verið kennt við Opna háskólann síðan 2010.

 
 

Hagnýtar upplýsingar

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við verkefnastjóra og óska eftir samtali, hvort sem er á fjarfundi, síma eða í eigin persónu, til að fá nánari upplýsingar um námið. 

Inntökuskilyrði

Þau sem hafa lokið háskólaprófi njóta forgangs í námið. Aðrar prófgráður koma til greina og eru skoðaðar sérstaklega auk annarra þátta svo sem staðfestingu á stjórnendareynslu, reynslu af atvinnumarkaði, umsagna og greinagerðar frá umsækjanda sjálfum.

Umsókn og fylgigögn

Til að sækja um námið skráir fólk sig hér á þessari síðu. 
(Við mælum með að velja greiðsluseðil þegar kemur að greiðslumáta.)
Með umsókninni þurfa að fylgja:

  • afrit af prófskírteini síðustu prófgráðu
  • ferilskrá.

Þessum gögnum þarf að senda verkefnastjóra með tölvupósti: lindav@ru.is

Hagnýtar upplýsingar 

  • Nemendur fá veitingar í staðarlotum.
  • Innifalið í verði námsbrautarinnar eru vandað kennsluefni Coach U um markþjálfun fyrir atvinnulíf.
  • Kennsluáætlun veturinn 2026-2027*

*Athugið að kennsluáætlun er birt með fyrirvara um breytingar. 

Hægt er að velja á milli þess að greiða námsgjöldin með korti, eða fá greiðsluseðil í heimabanka. Greiðsluseðillinn er með eindaga um þremur vikum fyrir upphaf námsins. 
Hægt er að greiða inn á greiðsluseðla, gera raðgreiðslusamning og þannig skipta niður greiðslunum eða greiða með Netgíró eða Pei.

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.

Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Verkefnastjóri

Linda Vilhjálmsdóttir

lindav@ru.is 

599 6341

Leiðbeinendur

Melinda Horton
Melinda Horton
Executive Coach – Strategic & Transformational Change – PCC, EMBA, GAICD
Jennifer Anderson
Jennifer Anderson
Executive Coach and Career Strategist - MCC, PMC, DTM