Beint í efni
Notkun á Claude á hagnýtan hátt

Notkun á Claude á hagnýtan hátt

Helstu upplýsingar

AI skills
Tæknilausnir
Dagsetningar og dagskrá
22. okt. 2026
3 klst
29.000 kr.
Staðnám

Um námskeiðið

Claude er eitt öflugasta gervigreindartækið í dag og hentar vel fyrir texta- og gagnavinnu, skýrslugerð, og flóknari verkefni.

Þetta námskeið er hannað fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref og vilja læra að nota Claude af öryggi í daglega starfinu án þess að eyða tíma í óþarfa tæknipælingar.

Á þremur klukkustundum ferð þú í gegnum helstu eiginleika Claude með praktískum æfingum. Áherslan er á raunveruleg dæmi úr vinnuumhverfinu: hvernig á að spyrja réttu spurninganna (prompting), vinna úr gögnum og texta, og nýta sjálfvirka agenta (AI agents) til að einfalda og flýta fyrir flóknari ferlum.

Það sem þú lærir:

  • Grunnurinn og uppsetning: Hvernig Claude virkar og hvernig þú færð sem best svör með réttri uppbyggingu fyrirmæla (prompt engineering).
  • Texta- og skjalavinnsla: Hvernig á að nýta Claude til að draga saman langar skýrslur, greina PDFskjöl, yfirfara texta og skrifa markvissan póst.
  • Gervigreindaraðstoðarmenn (AI Agents): Kynning á því hvernig Claude getur starfað sem sjálfstæður aðstoðarmaður, keyrt flóknari verkferla í mörgum skrefum, fylgt ákveðnum reglum og leyst af hendi sérhæfð verkefni.
  • Verkefnamiðuð notkun (Projects & Artifacts): Hvernig á að byggja upp sértæk verkefnasvæði og sniðmát í Claude til að halda utan um samræmd vinnubrögð og vörumerkjaáherslur.
  • Upplýsingaöryggi og trúnaður: Hvers ber að gæta þegar unnið er með gögn og upplýsingar fyrirtækja.

Fyrirkomulag
Námskeiðið er 3 klukkustundir og byggist á stuttum kynningum fléttuðum saman við praktískar æfingar. Þátttakendur vinna með raunveruleg dæmi til að tryggja að hægt sé að færa þekkinguna beint yfir í daglega vinnu.

Fyrir hverja er námskeiðið

Sérfræðinga, stjórnendur og starfsfólk sem vill ná tökum á Claude og nýta tæknina til að auka gæði og spara tíma í sínum verkefnum. Námskeiðið miðast við byrjendur og enga kröfu um forþekkingu á gervigreind.

Skipulagið

Námskeiðið er 3 klst.

Milli kl 9-12

Hagnýtar upplýsingar

Nemendur fá létta morgunhressingu.
Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Athugið að ef greiðsluseðill er valinn er hægt að greiða inn á seðilinn í þínum netbanka. 

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.

Verkefnastjóri

Linda Vilhjálmsdóttir

lindav@ru.is 

599 6341

Leiðbeinendur

Stefán Ólafsson
Stefán Ólafsson
Assistant professor at the Department of Computer Science at Reykjavik University