Beint í efni
OHR Bókarar - Viðurkenndir bókarar

OHR Bókarar - Viðurkenndir bókarar

Helstu upplýsingar

Leiðtoga- og stjórnendalínur
OHR Bókarar
Dagsetningar og dagskrá
25. ágúst 2026
Ein önn - 137 klst - FJARNÁM eða STAÐARNÁM
345.000 kr.

Stutt lýsing

Snemmskráningar afsláttur gildir til og með 15. maí 2026. Skráðu þig núna og þú færð 10% afslátt með kódanum: SnemmH26

Um námskeiðið

Umfangs- og efnismikið nám í grunnatriðum reikningshalds og skatta fyrir lítil til meðalstór fyrirtæki. Hægt er að velja á milli staðarnáms eða fjarnáms.
Áður hét námslínan Viðurkenndir bókarar - og námið hentar afar vel undir þau próf. 

Um er að ræða hagnýtt og viðamikið bókhaldsnám sem hannað er út frá raundæmum á atvinnumarkaðinum. 
Í þessu námi er gert ráð fyrir að þátttakendur búi yfir þekkingu á undirstöðuatriðum bókhalds. 

Meðal þess sem er kennt:

  • Reikningshald
  • Uppsetning ársreikninga
  • Skattamál lögaðila og einstaklinga
  • Útreikningur tekjuskatts
  • Framtalsgerð

Í lok námsins er stefnt að því að nemendur:

  • Hafi dýpri skilning á meginreglum reikningshalds
  • Hafi aukna þekkingu á því lagaumhverfi sem bókhald og reikningsskil eru byggð á
  • Hafi betri hæfni í notkun Excel því mikil áhersla er lögð á hana
  • Hafi almenna innsýn í skattalög og reglur varðandi skattlagningu fyrirtækja og einstaklinga
  • Þekki betur upplýsingaskyldu og verklag varðandi virðisaukaskatt og aðra vörsluskatta

Kennslan

Leiðbeinendur eru allir löggiltir endurskoðendur með mikla reynslu

Kennararnir búa yfir margra ára reynslu af prófagerð og undirbúningi nemenda til viðurkenningar bókara. Þeir þekkja námsferlið afar vel sem gerir þeim kleift að koma því einstaklega vel til skila. Þeir eru starfandi sérfræðingar á sviði bókhalds og endurskoðunar og miðla af þekkingu sinni og reynslu með raunhæfum dæmum úr íslensku atvinnulífi.

Fyrirlestrar og dæmatímar

Kennsla fer fram í fyrirlestraformi og í dæmatímum þar sem farið er í mikið af verklegum æfingum í Excel. 

Þekkingarpróf

Nemendur munu leysa stutt rafræn krossapróf reglulega yfir námstímann.
Þeir sem standast öll prófin fá staðfestingu á því að hafa klárað þetta nám. 

Námið hentar afar vel sem undirbúningur undir prófin, Viðurkenndir bókarar sem haldin eru af Prófamiðstöð Íslands ehf. 

Fyrir hverja er námskeiðið

Námið er einkum ætlað starfsfólki bókhalds-, fjármála- og hagdeilda fyrirtækja og sjálfstætt starfandi bókurum. Mælt er með því að umsækjendur hafi unnið við bókhald í a.m.k. 2-3 ár og hafi á þeim tíma sinnt margvíslegum og krefjandi bókhaldsstörfum. Sér í lagi ef stefnt er að því að taka prófin til Viðurkennds bókara. 

Skipulagið

Námið er ein önn og stendur nemendum til boða bæði í staðarnámi og fjarnámi.

Kennt er þrjú kvöld í viku, á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum milli kl 17-21.

Námið hefst í lok ágúst og lýkur í byrjun desember.

Kennsluáætlun Haust 2026

Þátttakendur fá tímabundinn aðgang af upptökum úr tímunum sem bjóða upp á sveigjanleika fyrir bæði staðarnema og fjarnema.
Allt kennsluefni er rafrænt.

Hagnýtar upplýsingar

Skírteini
Þeir þátttakendur sem standast öll þekkingarpróf í náminu fá skírteini þess efnis. 

Fyrirvari
Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Greiðsla námsgjalda
Athugið að ef greiðsluseðill er valin er hægt að greiða inn á seðilinn í þínum netbanka. 

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið

Verkefnastjóri

Linda Vilhjálmsdóttir

lindav@ru.is 

599 6341

Leiðbeinendur

Kristjana Pálsdóttir
Kristjana Pálsdóttir
Lögfræðingur og verkefnastjóri hjá Deloitte Legal ehf.
Elías Þór  Sigfússon
Elías Þór Sigfússon
Löggiltur endurskoðandi og meðeigandi hjá Deloitte ehf.
Lúðvík Þráinsson
Lúðvík Þráinsson
Löggiltur endurskoðandi og meðeigandi hjá Deloitte ehf.
Páll Daði  Ásgeirsson
Páll Daði Ásgeirsson
Löggiltur endurskoðandi og meðeigandi hjá Deloitte ehf.