
Örugg notkun á gervigreind til forritunar
Helstu upplýsingar
Um námskeiðið
Frá hugmynd að öruggri vefsíðu í rekstri - með aðstoð gervigreindar.
Í þessu hagnýta námskeiði vinna þátttakendur með nútímalega nálgun að hugbúnaðarþróun þar sem hraði, notendaupplifun („vibe") og öryggi fara saman. Farið er frá hugmynd að veflausn með bakenda yfir í útgáfu, rekstur og langtíma viðhald.
Áhersla er lögð á:
- Raunverulegt “dev workflow”
- Örugga uppsetningu frá fyrsta degi
- Hvernig teymi hugsa um útgáfur, rekstur og stöðugleika
Markmið námskeiðs
Að loknu námskeiði geta þátttakendur:
- Sett upp einfalt full-stack vefverkefni með aðstoð gervigreindar
- Skilið útgáfuferla (CI/CD) og hvernig þeir eru innleiddir
- Beitt bestu öryggisvenjum í þróun
- Hugsað verkefni með rekstur og viðhaldi í huga
- Strúktúrað kóða og verkefni þannig að þau séu skalanleg og auðvelt í viðhaldi
Fyrir hverja er námskeiðið
Námskeiðið er fyrir þá sem eru með grunn í forritun.
Skipulagið
Námskeiðið er kennt í tveimur lotum með viku á milli.
3 klst í senn, kl 9-12
Samtals 6 klst,
Hagnýtar upplýsingar
Nemendur fá létta morgunhressingu þá daga sem kennt er.
Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Athugið að ef greiðsluseðill er valin er hægt að greiða inn á seðilinn í þínum netbanka.
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.
Verkefnastjóri
Leiðbeinendur


