
Öryggi og úrræði í breyttum heimi
Helstu upplýsingar
Um námskeiðið
Hvernig bregðumst við við fjölþættum ógnum og styrkjum seiglu samfélags, stofnana og fyrirtækja?
Öryggisumhverfi heimsins hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum. Netárásir, upplýsingaóreiða, innviðatruflanir, skipulögð glæpastarfsemi og alþjóðlegar spennur hafa aukin áhrif á starfsemi fyrirtækja, stofnana og samfélaga. Á sama tíma verða mörkin milli opinberra aðila og einkageirans sífellt óskýrari þegar kemur að öryggi, viðbúnaði og viðbrögðum.
Á þessu þriggja daga námskeiði fá þátttakendur heildstæða sýn á þær öryggisáskoranir sem Ísland stendur frammi fyrir og hvernig hægt er að byggja upp viðnámsþrótt, viðbúnað og skilvirka samhæfingu þegar á reynir. Námið sameinar fræðilega umfjöllun, raunveruleg dæmi og hagnýtar æfingar þar sem þátttakendur vinna með áskoranir úr eigin starfsemi og íslensku samhengi.
Áhersla er lögð á að efla skilning á kerfisáhættu, hlutverki opinberra aðila og einkageirans, ákvarðanatöku undir álagi og mikilvægi samstarfs þvert á stofnanir og geira. Námskeiðinu lýkur með umfangsmikilli krísustjórnunaræfingu þar sem þátttakendur takast á við raunhæfa atburðarás og æfa viðbrögð við fjölþættri ógn.
Helstu viðfangsefni
- Breytt öryggisumhverfi og staða Íslands
- Fjölþáttaógnir, netöryggi og upplýsingaóreiða
- Kerfisáhætta og keðjuáhrif í starfsemi og innviðum
- Hlutverk og ábyrgð stjórnvalda, stofnana og fyrirtækja
- Samhæfing og samstarf við válegar aðstæður
- Ákvarðanataka undir þrýstingi og óvissu
- Krísustjórnun og seigla skipulagsheilda
- Hagnýtar æfingar og raunveruleg dæmi úr íslensku og alþjóðlegu samhengi
Að námi loknu munu þátttakendur:
- Skilja helstu öryggisáskoranir sem Ísland stendur frammi fyrir.
- Geta greint áhættu, veikleika og kerfisáhrif í eigin starfsemi.
- Þekkja hlutverk, ábyrgð og samspil ólíkra aðila í öryggis- og viðbragðsmálum.
- Hafa æft ákvarðanatöku og samhæfingu undir álagi.
- Vera betur í stakk búnir til að styrkja viðbúnað og seiglu innan eigin skipulagsheildar.
Námskeiðið sameinar fræðilega innsýn og raunhæfa framkvæmd og veitir þátttakendum verkfæri til að takast á við sífellt flóknara öryggisumhverfi samtímans.
Fyrir hverja er námskeiðið
Námskeiðið er ætlað stjórnendum, sérfræðingum og lykilstarfsfólki hjá fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum sem vilja efla skilning sinn á nútíma öryggisáskorunum og styrkja getu sína til að greina áhættu, taka upplýstar ákvarðanir og bregðast við þegar óvæntar aðstæður skapast.
Skipulagið
Námskeiðið er kennt í þremur lotum með viku á milli.
6 klst í senn, kl 9-15
Samtals 18 klst,
Hagnýtar upplýsingar
Nemendur fá létta morgunhressingu og hádegismat þá daga sem kennt er.
Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Athugið að ef greiðsluseðill er valin er hægt að greiða inn á seðilinn í þínum netbanka.
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.
Verkefnastjóri
Leiðbeinendur


