Beint í efni
Passaðu púlsinn í desember

Passaðu púlsinn í desember

Helstu upplýsingar

Leiðtogafærni
Sveigjanlegar dagsetningar
2 klst
5.500 kr.
Á eigin hraða

Stutt lýsing

Dagana 27. nóvember – 1. desember getur þú tryggt þér 15% afslátt af öllum stafrænum námskeiðum Opna háskólans. Notaðu kóðann Netdagar26 við skráningu til að virkja afsláttinn.

Um námskeiðið

Desember og jólin geta verið tími gleði, en líka tími mikillar streitu. Langar þig að læra að byggja upp andlega þrautseigju til að takast á við streitu og erfiðleika? Sigrún Þóra mun kenna aðferðir eins og hugleiðslu, jákvæðar tilfinningar og öndunartækni sem þú getur nýtt þér til þess að hafa áhrif á streituviðbragðið og byggja upp þrautseigju. Lærðu að takast á við jólastressið og njóttu jólanna með aukinni andlegri þrautseigju.

Hvernig tengjast jákvæðar tilfinningar og heilsa? Rannsóknir hafa sýnt fram á að ávinninginn sem fylgir því að upplifa jákvæðar tilfinningar er m.a. lengra líf, betra hjarta og æðakerfi og sterkara ónæmiskerfi.

Dæmi um jákvæðar tilfinningar eru sátt, umhyggja, þakklæti og kærleikur. Á þessu 2 klst. námskeiði fá þátttakendur hagnýt verkfæri í hendurnar sem byggja upp andlega heilsu og þrautseigju. Áhersla verður lögð á að gefa þátttakendum tækifæri til að fá að prufa verkfærin á námskeiðinu og Sigrún mun veita einföld og áhrifarík skref sem hægt er að innleiða strax í daglegu lífi, til að byggja upp þrautseigju og draga úr streitu. Námskeiðið er haldið í gegnum fjarnám, svo þú getur tekið þátt hvar sem þú ert.

Helstu hæfnisþættir:

  1. Áhrif á streituviðbragðið: Öðlastu dýpri skilning á því hvernig þú getur haft áhrif á streituviðbragðið í daglegu lífi með notkun gagnreyndra verkfæra.
  2. Jákvæðar tilfinningar og líkamleg virkni: Lærðu hvernig jákvæðar tilfinningar haf góð áhrif á lífeðlislega virkni líkamans og stuðlað að betri heilsu.
  3. Öndun og streitustjórnun: Fáðu innsýn í það hvernig ólík öndunartíðni getur haft marktæk áhrif á streituviðbragðið, auk þess að efla athyglis- og tilfinningastjórn.

Í lok námskeiðsins ættu þátttakendur að vera færir um að:

  1. Nota verkfæri í daglegu lífi: Beita hagnýtum, gagnreyndum verkfærum sem hafa áhrif á streituviðbragðið og bæta almenna vellíðan.
  2. Efla þrautseigju og streituþol: Byggja upp andlega þrautseigju og auka streituþol sitt með því að virkja jákvæðar tilfinningar og hafa meðvitað áhrif á öndunartíðni.

 

Fyrir hverja er námskeiðið

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á að hafa áhrif á eigin heilsu og vilja efla andlega þrautseigju.

Skipulagið

Námskeiðið er á stafrænu formi og aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans.

Verkefnastjóri

Íris Bjarnadóttir
irisbja@ru.is

Leiðbeinendur

Sigrún Þóra  Sveinsdóttir
Sigrún Þóra Sveinsdóttir
Sálfræðingur