Beint í efni
Að selja hugmyndina – sölustrategía og fjármögnun á frumstigi

Að selja hugmyndina – sölustrategía og fjármögnun á frumstigi

Helstu upplýsingar

Persónuleg þróun
Dagsetningar og dagskrá
29. jan. 2027
3 klst.
29.000 kr.
Staðnám

Um námskeiðið

Á þessu námskeiði lærir þú hvernig hægt er að selja hugmynd, þjónustu eða vöru áður en hún er tilbúin og jafnvel áður en hún verður til. Farið verður yfir hvernig hægt er að ná utan um virði á fyrstu stigum og móta skýra sögu sem kveikir áhuga hjá samstarfsaðilum, styrktaraðilum og fjárfestum. Þá verður skoðað hvernig megi skapa lifandi sölu og fjármögnunarferla.

Þátttakendur kynnast mismunandi fjármögnunarleiðum og samningstækni sem nýtist strax, hvort sem markmiðið er að ná í fyrstu viðskiptavini, tryggja samstarfsaðila, sækja um styrki eða tala til fjárfesta. Þú vinnur með þitt eigið verkefni í vinnustofu þar sem áhersla er á að útfæra sölumódel, greina markhópa og ákveða næstu aðgerðir í ferlinu. Að námskeiðinu loknu hefur þú hagnýt verkfæri, tækni og næstu skref til að keyra verkefnið áfram úr hugmynd í raunveruleika.

Helstu kennsluþættir námskeiðsins

- Sögur og sannfæring: Að byggja upp sterka frásögn um verkefnið

- Sölustrategía: Að finna og nálgast rétta aðila

- Greining og forgangsröðun: Uppbygging samstarfsaðila og viðskiptavina

- Að loka samningum og samningaviðræður

- Hagnýt vinnustofa, umræður og endurgjöf

Lærdómsviðmið - Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að geta

- Byggt upp grípandi sögu um verkefnið sitt og framtíðarsýn

- Kortlagt og forgangsraðað mögulegum samstarfsaðilum, styrktaraðilum og fjárfestum

- Mótað sölu- og fjármögnunarstefnu snemma í verkefnisferlinu

- Sett saman pitch sem leiðir til fundar, tilboðs eða fjármögnunar

- Framkvæmt fyrstu söluaðgerðir

Fyrir hverja er námskeiðið

Námskeiðið hentar öllum þeim sem eru að þróa nýjar hugmyndir eða verkefni og þurfa að selja þau áður en þau eru komin á markað. Námskeiðið hentar sérstaklega frumkvöðlum og stofnendum fyrirtækja, stjórnendum í nýsköpun og markaðsmálum og teymum í upphafsfasa vöru- eða þjónustuþróunar.

Skipulagið

Námskeiðið er kennt í staðarnámi í Opna háskólanum frá kl. 09:00-12:00.

Vinsamlega athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Hagnýtar upplýsingar

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.

Verkefnastjóri

Magnús Gunnlaugur Þórarinsson
magnusth@ru.is
599 6300

Leiðbeinendur

Melkorka Sigríður Magnúsdóttir
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir
Stofnandi og listrænn stjórnandi Iceland Innovation Week
Edda Konráðsdóttir
Edda Konráðsdóttir
Stofnandi og framkvæmdastjóri Iceland Innovation Week