Beint í efni
Magnavita - Staðan í hálfleik

Magnavita - Staðan í hálfleik

Helstu upplýsingar

Persónuleg þróun
Dagsetningar og dagskrá
15. jan. 2027
10 kennsludagar
390.000 kr.
Staðnám

Um námskeiðið

Staðan í hálfleik – ein heildarvegferð

Staðan í hálfleik er heildstæð vegferð fyrir fólk sem vill taka næsta kafla lífsins meðvitað og af öryggi. Námið hjálpar þér að staldra við, horfa fram á veginn og móta skýra sýn á framtíðina. Þú styrkir tengsl sem skipta máli, lærir að nýta gervigreind og nýja tækni, undirbýrð fjárhagslegt svigrúm og frelsi og eflir heilsuna til framtíðar.

Markmiðið er einfalt; að fjölga spennandi og heilbrigðum æviárum og veita þér gagnreynda þekkingu og verkfæri til að hanna næsta kafla lífsins.

Nemendur:

  • Uppfæra sína sýn á tækifæri til framtíðar
  • Vinna persónulega stefnumótun – hvernig líta næstu 10-20 árin út?
  • Taka stöðuna til að endurstilla áttavitann og móta persónulega stefnu. Hver er staðan og hvert skal stefna í lífi og starfi?
  • Skipuleggja starfsþróun næstu ára
  • Efla tengslanet og samskipti sem skapa tækifæri og skipta máli í lífi og starfi
  • Nýta möguleika gervigreindar og tæknibreytinga, því gervigreind og reynsla er mögnuð samsetning og veitir forskot í framtíðina
  • Skoða þróun starfa í ljósi gervigreindar og tæknibreytinga
  • Láta peningana vinna fyrir þig, ekki öfugt
  • Efla heilsu og taka hana föstum tökum
  • Vinna leikskipulag fyrir næsta kafla lífsins

Frekari upplýsingar inn á magnavita.is

Fyrir hverja er námskeiðið

Námið er ætlað fólki á aldrinum 40 til 55 ára sem vill endurmeta og efla sína sýn á framtíðartækifæri og hafa verkfæri til að grípa þau.

Námið er fyrir fólk sem vill:

  • Endurstilla áttavitann fyrir næstu 10–15 ár
  • Styrkja tengsl og tengslanet
  • Skilja og nýta gervigreind og ný tækifæri
  • Ná betri stjórn á fjármálum
  • Efla heilsu, orku og lífsgæði
  • Fara úr hugsun og pælingum í framkvæmdir sem skila árangri.

Hvers vegna ætti ég að fara á svona námskeið?

Lífið breytist.

Flest okkar undirbúum breytingarnar ekki nægilega vel og meðvitað en markviss persónuleg stefnumótun getur skipt sköpum.

Magnavita byggir á rannsóknum, reynslu og öflugum leiðbeinendum sem hjálpa þér að undirbúa næsta kafla með skýrari sýn og meiri krafti.

Námskeiðin eru hönnuð með skýra hugmyndafræði að leiðarljósi:

  • Gagnreynd nálgun: Allt efni byggir á nýjustu þekkingu og vísindalegum rannsóknum
  • Einfaldleiki: Þekking og vísindi dregin saman á einfaldan hátt svo þátttakendur geti greint hvað skiptir mestu máli
  • Hagnýtt nám: Þekking sem nýtist í daglegu lífi
  • Litlar breytingar sem skila miklu yfir lengri tíma: Áhersla á litlar, stöðugar breytingar sem hafa veruleg langtímaáhrif

Námskeiðin samanstanda af fyrirlestrum og hagnýtum verkefnum sem þátttakendur vinna.

Skipulagið

Fyrirkomulag náms

  • Í náminu eru 10 kennsludagar
  • Við hefjum leik 15. janúar 2027 og klárum 19. febrúar. Hittumst svo aftur í maí til eftirfylgni og útskriftar
  • Kennt er hálfan dag í senn, á föstudögum frá 13:00-17:00 og á laugardögum frá 9:00-13:00 og ein fríhelgi 29. og 30. janúar.
  • Við byrjum á mikilvægi stefnumótunar og ræðum leiðir til að námið skili sér í árangri fyrir nemendur. Við taka fjögur tveggja daga námskeið. Loks er eftirfylgni og útskrift um þremur mánuðum síðar.

Leiðbeinendur
Reynslumiklir og öflugir leiðbeinendur sjá um kennsluna. 

Heiti námskeiða

  • Stefnumótun og innleiðing stefnu
  • Tengslanet og samskipti sem skapa tækifæri
  • Gervigreind, tækni og þróun starfa
  • Láttu peningana vinna fyrir þig, ekki öfugt
  • Vertu heilbrigðari og sterkari lengur
  • Eftirfylgni og útskrift seinnipartinn í maí

Hagnýtar upplýsingar

Starfsmenntasjóðir:
Námið er styrkhæft hjá flestum starfsmenntasjóðum stéttarfélaga. 

Réttindi sem hafa áunnist geta verið mismunandi og eftir atvikum umtalsverð. Við bendum því fólki á að skoða vel sína sjóði hjá þeim stéttarfélögum sem það er aðili að með því að skrá sig inn í gegnum sína réttindagátt. Aðra möguleika má skoða á attin.is.

Verkefnastjóri

Íris Bjarnadóttir I irisbja@ru.is

Leiðbeinendur

Eva  Katrín Sigurðardóttir
Eva Katrín Sigurðardóttir
Læknir og viðskiptafræðingur
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir
Hagfræðingur
Jóhann Friðgeir Haraldsson
Jóhann Friðgeir Haraldsson
Rafmagnsverkfræðingur og með BA í heimspeki
Kristján Þór Gunnarsson
Kristján Þór Gunnarsson
Heimilislæknir
Georg Lúðvíksson
Georg Lúðvíksson
Hugbúnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og MBA frá Harvard Business School
Benedikt Olgeirsson
Benedikt Olgeirsson
Verkfræðingur, MSc
Dr. Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir
Dr. Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir
Dr. í atferlisfræði með áherslu á stjórnun
Sigríður Olgeirsdóttir
Sigríður Olgeirsdóttir
Kerfisfræðingur, MBA frá HR og AMP frá HBS