Beint í efni
Undirbúningur fyrir atvinnulífið – ferilskrá, kynningarbréf og gervigreind í atvinnuleit

Undirbúningur fyrir atvinnulífið – ferilskrá, kynningarbréf og gervigreind í atvinnuleit

Helstu upplýsingar

Kvöldnámskeið
Persónuleg þróun
Dagsetningar og dagskrá
28. apríl 2026
4 klst
35.000 kr.
Staðnám

Um námskeiðið

Langar þig að efla sjálfstraustið í atvinnuleit, skerpa á eigin framsetningu og læra að búa til öfluga ferilskrá og kynningarbréf? Í þessu hagnýta námskeiði leiða náms- og starfsráðgjafar þig í gegnum helstu verkfæri og aðferðir til að undirbúa þig fyrir næstu skref í atvinnulífinu.

Við förum yfir hvernig þú getur tengt reynslu, hæfni og styrkleika á skýran og faglegan hátt, aðlagað umsóknargögn að ólíkum störfum og forðast algeng mistök. Einnig skoðum við hvernig gervigreind getur stutt við ferlið – og hvenær hún á alls ekki heima í ferilskrá eða kynningarbréfi.

Námskeiðið hentar bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaðinn og þeim sem finna fyrir þörf á breytingu.

Á námskeiðinu lærir þú að:

  • byggja upp skýra og áhrifaríka ferilskrá
  • skrifa faglegt og sannfærandi kynningarbréf
  • greina styrkleika og hæfni og setja þau fram á markvissan hátt
  • nota gervigreind á ábyrgan og gagnlegan hátt í atvinnuleit
  • forðast algeng „don’ts“ sem geta skaðað trúverðugleika umsóknargagna

 

Fyrir hverja er námskeiðið

Námskeiðið er ætlað fólki sem vill efla færni og sjálfstraust í atvinnuleit, hvort sem það er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaðinn eða er að leita að breytingu og vill styrkja ferilskrá, kynningarbréf og meðvitaða notkun gervigreindar.

Skipulagið

Við blöndum stuttum fræðilegum innlögum, dæmum, verklegum æfingum og stuðningi frá ráðgjöfum. Þú færð tækifæri til að vinna með eigið efni og fara heim með gagnleg verkfæri og uppfærð gögn til að nota í atvinnuleitinni.

Námskeiðið verður kennt í staðarnámi í Opna háskólanum 28. og 30. apríl frá kl. 17:00 - 19:00.

Hagnýtar upplýsingar

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.

Verkefnastjóri

Íris Bjarnadóttir I irisbja@ru.is

Leiðbeinendur

Hildur Katrín Rafnsdóttir
Hildur Katrín Rafnsdóttir
Forstöðumanneskja Nemendaráðgjafar HR
Stella Ólafsdóttir
Stella Ólafsdóttir
Náms- og starfsráðgjafi