Beint í efni
Upplýsingaskylda vegna innherjaupplýsinga

Upplýsingaskylda vegna innherjaupplýsinga

Helstu upplýsingar

Endurnýjun réttinda
Verðbréfaréttindi
Sveigjanlegar dagsetningar
2 klst
29.000 kr.
Á eigin hraða

Stutt lýsing

Endurmenntun vegna verðbréfaréttinda. Námskeiðið er vottað af Prófnefnd verðbréfaréttinda. 

Um námskeiðið

Fjallað verður um upplýsingaskyldu skráðra útgefenda vegna innherjaupplýsinga samkvæmt Markaðssvikareglugerð ESB (MAR) sem var innleidd í íslenskan rétt árið 2021.

 

Farið er m.a. yfir tímamark upplýsingaskyldunnar, möguleika til að fresta birtingu upplýsinganna og fyrirhugaðar breytingar á MAR varðandi tímamark upplýsingaskyldunnar. Umræddar breytingar voru samþykktar í október 2024 og eru hluti af svokölluðum skráningarpakka ESB (Listing Package Act) sem er ætlað að fá fleiri fyrirtæki til að skrá sig á markað á Evrópska efnahagssvæðinu. Leitast verður við að hafa umfjöllunina praktíska. Farið er yfir helstu atriði í löggjöfinni og vikið að ýmsum fordæmum sem fjalla um upplýsingaskylduna.

 

Námskeiðið jafngildir 2 klst. í endurmenntun hjá þeim sem hafa verðbréfaréttindi (áður próf í verðbréfaviðskiptum)

 

Þeim öðlast hafa verbréfaréttindi er skylt að sækja reglulega endrumenntun sem tryggir að þeir viðhaldi fræðilegri þekkingu, faglegri hæfni og gildum. Endurmenntun vegna verðbréfaréttinda skal að lágmarki svara til sex klukkustunda á hverju þriggja ára tímabili sem skulu vera staðfestar, t.d. með skriflegri staðfestingu námskeiðshaldara eða frá viðkomandi háskóla ef um er að ræða kennslustörf eða fyrirlestrahald á háskólastigi.
Endurmenntunin skal ná til einhverra þeirra greina sem verðbréfaréttindaprófið prófar úr og skal að lágmarki tveimur klukkustundum varið í endurmenntun um lög og reglur á fjármálamarkaði
Endurmenntunartímabil þeirra sem öðlast hafa réttindi hefst 1. janúar árið eftir að þau voru veitt.
Þeir sem hafa verðbréfaréttindi skulu halda skrá um endurmenntun sína og afhenda prófnefnd verðbréfaréttinda hana, á því formi sem nefndin ákveður, óski nefndin eftir því.

 

Í 8. og 9. gr. reglugerðar um verðbréfaréttindi, nr. 1125/2021, er nánar fjallað um endurmenntun vegna verðbréfaréttindaprófs.

 

 

Fyrir hverja er námskeiðið

Fyrir þá sem hafa öðlast verðbréfaréttindi. Þeim er skylt að sækja reglulega endurmenntun sem tryggir að þeir viðhaldi fræðilegri þekkingu, faglegri hæfni og gildum. 

Skipulagið

Námskeiðið er stafrænt. Það er opið í eitt ár og hver þátttakandi vinnur á sínum tíma og hraða. 

Hagnýtar upplýsingar

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.

Þeir sem hafa verðbréfaréttindi skulu skrá upplýsingar um endurmenntun sína á Ísland.is, sjá nánar hér.

Verkefnastjóri

Íris Bjarnadóttir

irisbja@ru.is

Leiðbeinendur

Andri  Fannar Bergþórsson
Andri Fannar Bergþórsson
Prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík