Beint í efni
Verðmat fyrirtækja: Ávöxtunarkrafa og sjóðstreymisverðmat

Verðmat fyrirtækja: Ávöxtunarkrafa og sjóðstreymisverðmat

Helstu upplýsingar

Endurnýjun réttinda
Verðbréfaréttindi
Sveigjanlegar dagsetningar
2 klst
29.000 kr.
Á eigin hraða

Stutt lýsing

Endurmenntun vegna verðbréfaréttinda. Námskeiðið er vottað af Prófnefnd verðbréfaréttinda. 

Um námskeiðið

Á námskeiðinu verður farið yfir kenningar og aðferðir sem tengjast ávöxtunarkröfu hlutabréfa, vegnum meðalfjármagnskostnaði og sjóðstreymisverðmati. Fjallað er um grundvallarhugtök við fjárfestingar og aðferðafræði til að reikna út ávöxtunarkröfu með m.a. CAPM og WACC líkönum.

Farið verður yfir helstu álitamál við sjóðstreymisverðmöt og fjallað um hvernig greining á fyrirtækjum og áætlanagerð getur leitt til ítarlegs verðmats á félagi í heild sinni og hlutafé þess með FCFF sjóðstreymisverðmati.

Námskeiðið jafngildir 2 klst. í endurmenntun hjá þeim sem hafa verðbréfaréttindi (áður próf í verðbréfaviðskiptum)

Þeim sem öðlast hafa verðbréfaréttindi er skylt að sækja reglulega endurmenntun sem tryggir að þeir viðhaldi fræðilegri þekkingu, faglegri hæfni og gildum. Endurmenntun vegna verðbréfaréttinda skal að lágmarki svara til sex klukkustunda á hverju þriggja ára tímabili sem skulu vera staðfestar, t.d. með skriflegri staðfestingu námskeiðshaldara eða frá viðkomandi háskóla ef um er að ræða kennslustörf eða fyrirlestrahald á háskólastigi.
Endurmenntunin skal ná til einhverra þeirra greina sem verðbréfaréttindaprófið prófar úr og skal að lágmarki tveimur klukkustundum varið í endurmenntun um lög og reglur á fjármálamarkaði
Endurmenntunartímabil þeirra sem öðlast hafa réttindi hefst 1. janúar árið eftir að þau voru veitt.
Þeir sem hafa verðbréfaréttindi skulu halda skrá um endurmenntun sína og afhenda prófnefnd verðbréfaréttinda hana, á því formi sem nefndin ákveður, óski nefndin eftir því.

Í 8. og 9. gr. reglugerðar um verðbréfaréttindi, nr. 1125/2021, er nánar fjallað um endurmenntun vegna verðbréfaréttindaprófs.

 

Fyrir hverja er námskeiðið

Fyrir þá sem hafa öðlast verðbréfaréttindi. Þeim er skylt að sækja reglulega endurmenntun sem tryggir að þeir viðhaldi fræðilegri þekkingu, faglegri hæfni og gildum. 

Skipulagið

Námskeið er stafrænt. Það er alltaf opið og hver þátttakandi vinnur á sínum tíma og hraða.

Hagnýtar upplýsingar

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.

Þeir sem hafa verðbréfaréttindi skulu skrá upplýsingar um endurmenntun sína á Ísland.is, sjá nánar hér.

Verkefnastjóri

Íris Bjarnadóttir I irisbja@ru.is

Leiðbeinendur

Páll Ammendrup Ólafsson
Páll Ammendrup Ólafsson
Stundakennari við Opna háskólann í HR