
Verðmat fyrirtækja: Verðmatskennitölur
Helstu upplýsingar
Stutt lýsing
Endurmenntun vegna verðbréfaréttinda. Námskeiðið er vottað af Prófnefnd verðbréfaréttinda.
Um námskeiðið
Þetta námskeið veitir hagnýta innsýn í verðmat fyrirtækja með verðmatskennitölum. Farið er yfir helstu kennitölur eins og P/E (V/H) , P/B (V/I) og EV/EBITDA, ásamt öðrum algengum aðferðum. Þátttakendur læra hvernig kennitölur eru notaðar í samanburði á öðrum fyrirtækjum, hvernig val á samanburðarfélögum og tímasetning nefnara skiptir máli og hverjar helstu áskoranir eru. Farið er yfir raunhæft dæmi sem sýnir notkun kennitalna í verðmati
Fyrir hverja er námskeiðið
Fyrir þá sem hafa öðlast verðbréfaréttindi. Þeim er skylt að sækja reglulega endurmenntun sem tryggir að þeir viðhaldi fræðilegri þekkingu, faglegri hæfni og gildum.
Skipulagið
Námskeið er stafrænt. Það er alltaf opið og hver þátttakandi vinnur á sínum tíma og hraða.
Hagnýtar upplýsingar
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.
Þeir sem hafa verðbréfaréttindi skulu skrá upplýsingar um endurmenntun sína á Ísland.is, sjá nánar hér.
Verkefnastjóri
Íris Bjarnadóttir I irisbja@ru.is
Leiðbeinendur
